Krefst ógildingar hvalveiðileyfis vegna vanhæfis Bjarna

Lögmaður Nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna hefur óskað eftir því að Umboðs­maður Alþingis taki ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar um útgáfu hval­veiði­leyfa til frum­kvæð­is­rann­sóknar og að atvinnu­vega­ráðu­neytið ógildi leyfin. Bjarni hafi verið van­hæfur vegna fjöl­skyldu­tengsla.

Krefst ógildingar hvalveiðileyfis vegna vanhæfis Bjarna
Deilt um hval­veiði­leyfi Lögmaður óskar eftir að hval­veiði­leyfi verði ógilt þar sem van­hæfni telj­ist ógild­ingarann­marki.

Katrín Odds­dóttir, lög­maður hjá Rétti, fer fram á það við atvinnu­vega­ráðu­neytið að það ógildi hval­veiði­leyfi sem Bjarni Bene­dikts­son gaf út í ljósi van­hæfis hans. Þá fer hún fram á það við Umboðs­mann Alþingis að emb­ættið taki málið til frum­kvæð­is­rann­sóknar.

Katrín hefur gætt hags­muna Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands í mál­inu en sam­tökin leit­uðu til Umboðs­manns Alþingis fljót­lega eftir að Bjarni hafði rétt eftir kosn­ingar haustið 2024, sem starf­andi mat­væla­ráð­herra í starf­stjórn, veitt tveimur fyr­ir­tækjum leyfi til hval­veiða.

Annað þeirra var Hvalur hf. en eftir að umsókn fyr­ir­tæk­is­ins var send inn taldi Bjarni sig vera van­hæfan til að fjalla um málið vegna hags­muna vensla­manns og hugð­ist víkja við afgreiðslu þess. Ekki kom fram á þessum tíma hver þessi vensla­maður væri.

Tveimur vikum síðar upp­lýsti hann ráðu­neyt­is­stjóra um að ástæður van­hæfis hans væru ekki lengur fyrir hendi og ákvað að veita leyfin. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði þá fengið sína verstu nið­ur­stöðu í kosn­ingum frá …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár