Stefnir á að draga úr spennu í heiminum

Næstu daga verð­ur tek­ist á um flók­in og við­kvæm mál­efni á fundi G7-leið­toga í Frakklandi. Gest­gjaf­inn Emm­anu­el Macron, for­seti Frakk­lands, seg­ist fara inn á fund­inn með það að mark­miði að draga úr spennu í heim­in­um. Hans bíð­ur áskor­un um að ná sam­komu­lagi á milli Banda­ríkja­for­seta og annarra þjóð­ar­leið­toga.

Stefnir á að draga úr spennu í heiminum

Bandalagsríki úr G7-hópi stórvelda munu í dag reyna að ná saman við Donald Trump Bandaríkjaforseta á leiðtogafundi í Frakklandi, eftir að Bandaríkin og Íran náðu samkomulagi um að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum.

Trump kemur til dvalarstaðarins Evian-les-Bains við Genfarvatn í Frakklandi, nýbúinn að fagna 80 ára afmæli sínu í gærkvöldi. Bandalagsríkin vilja fá nánari upplýsingar um samkomulagið og fyrirhugaða opnun hins hernaðarlega mikilvæga Hormússunds fyrir skipaumferð.

En Íran verður langt frá því að vera eina eldfima málið á dagskrá á þessum þriggja daga fundi, því Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er væntanlegur þangað á morgun.

Macron stendur frammi fyrir vandasamri jafnvægislist sem felst í því að  hýsa Bandaríkjaforseta, sem oft er óútreiknanlegur og var aðeins nokkrum klukkustundum áður viðstaddur MMA-bardagakvöld á grasflötinni við Hvíta húsið í tilefni af afmælinu sínu.

„Tilbúin til aðgerða“ 

Macron sagði í færslu á Instagram í nótt að á leiðtogafundinum yrði farið yfir „afleiðingar“ …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
3
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár