„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“

Fram­kvæmda­stjóri UNICEF seg­ir ótækt að börn séu frels­is­svipt fyr­ir það eitt að vera út­lend­ing­ar. Önn­ur úr­ræði þurfi að virka til þess að brott­far­ar­mið­stöð verði aldrei not­uð til að vista börn.

„Verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað“
Birna Þórarinsdóttir Framkvæmdastjóri UNICEF segir miður að samningum við sveitarfélög um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi verið sagt upp.

„Þetta er orðið að lögum og núna er verkefni stjórnvalda að tryggja að þetta verði nær aldrei notað, eins og þau segja,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF, um ný lög um brottfararmiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. „Það verður að vera mjög virkt eftirlit með þessari starfsemi frá fyrsta degi.“

Með lögunum verður stjórnvöldum heimilt að vista umsækjendur um alþjóðlega vernd tímabundið í brottfararstöð til þess að tryggja að þeir verði á staðnum þegar vísa á þeim úr landi. Heimilt verður að vista börn í brottfararstöðinni þó að ákvæði hafi verið bætt við í meðferð þingsins um að barnafjölskyldur fái afmörkuð rými í henni.

UNICEF á Íslandi er íslensk landsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í umsögnum stofnunarinnar um málið á Alþingi kom fram að afstaða hennar sé að börn skuli aldrei vistuð í varðhaldi á grundvelli stöðu þeirra eða foreldra þeirra sem útlendingar. …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár