Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
Þrýstingur Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, er undir meiri þrýstingi frá flokksfélögum en hún hefur áður verið. Allt vegna samþykktar flokksins og brottfararstöð. Mynd: Golli

Samfylkingin virðist klofin gagnvart nýsamþykktum lögum um brottfararstöð fyrir hælisleitendur sem stendur til að senda úr landi. Athygli vakti þegar opið bréf fjölda áhrifafólks í flokknum birtist á Vísi undir yfirskriftinni „Ekki í okkar nafni“.

Þingflokkur Samfylkingarinnar virðist þó standa heilshugar á bak við lögin, og bendir á í umræðum við félaga sína að þau komi í veg fyrir að börn séu aðskilin foreldrum sínum áður en senda á þau úr landi. Eitthvað sem hafi tíðkast í fyrri framkvæmd. 

Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa Samfylkinguna fyrir lögin er Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður flokksins og ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórn Geirs Haarde. 

Ein þeirra sem svarar þeim báðum á samfélagsmiðlum er Margrét Sigrún Björnsdóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar flokksins, sem spyr: hvað eiga stjórnvöld að gera konkret gagnvart hælisleitendum?

Bentu á minnst tíu aðrar leiðir

Fjölmargir umsagnaraðilar gerðu alvarlegar athugasemdir við frumvarpið þegar …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár