„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“

Stofn­andi Sósí­al­ista­flokks­ins, Gunn­ar Smári Eg­ils­son, seg­ir nýj­an formann flokks­ins, Jón Ferdínand Esther­ar­son, reka fólk úr flokkn­um án heim­ild­ar og að að­al­fund mætti kæra til lög­reglu. „Ætti Sig­mund­ur Dav­íð enn að fá að mæta á flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins?“ spyr nýr formað­ur.

„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“
Leiðtogar Sósíalistaflokksins Stofnandi flokksins, Gunnar Smári Egilsson, segir nýkjörinn formann, Jón Ferdínand Estherarson, reka fólk úr flokknum án heimildar.

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segist ekki þekkja neinn sem fékk boð á aðalfund Sósíalistaflokksins, sem fram fór um helgina. Fólk úr fyrri stjórn gagnrýnir að fundurinn hafi ekki verið auglýstur opinberlega en ekkert mátti finna um hann á vefsíðu eða samfélagsmiðlasíðum flokksins áður en hann fór fram.

„Fékk 21 félagi boð á þennan fund?“ skrifar Gunnar Smári í spjallhópinn Rauða þráðinn á Facebook. „Ég þekki engan í flokknum sem fékk boð á fundinn, sem hvergi var auglýstur. Þetta er farið að líta út eins og rán einhverrar klíku á eignum almenns félags. Kannski ætti frekar að kæra þetta til lögreglu en félagaskrár.“

Við færslu Gunnars Smára segjast flokksmenn ýmist hafa fengið fundarboð eða ekki, en af skjáskotum má ráða að boðað hafi verið til fundarins, sem fram fór á Norðurlandi 6. til 7. júní, 22. maí og ítrekun send fimm dögum síðar.

Sara Stef Hildardóttir, fyrrum stjórnarmaður, segir fundinn hafa verið haldinn með leynd, en í samtali við Vísi sagði hún hóp flokksfólks hyggjast kæra fundinn til Fyrirtækjaskrár og hugsanlega fara með málið lengra.

Nýkjörinn formaður flokksins, Jón Ferdínand Estherarson, segir hins vegar við Heimildina að aðalfundur hafi verið kynntur á félagsfundum flokksins og fundarboð sent í tölvupósti á alla félaga flokksins og sömuleiðis ítrekun. „Fundurinn var ekki leynilegri en svo að gervallt félagatalið fékk að vita af fundinum með löglegum og eðlilegum fyrirvara og allir áhugasamir félagar fengu kynningu líka á félagsfundum,“ segir hann.

„Eins og gefur að skilja og er öllum morgunaugljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sósíalistaflokknum með öðru framboði, gegnir trúnaðarstörfum fyrir framboð sem býður fram gegn Sósíalistaflokknum og með mjög opnum og alvarlegum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin húsnæði og vinnur með ráðum og dáðum og með opinberlega yfirlýstum hætti að því að granda Sósíalistaflokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum,“ segir hann ennfremur í skriflegu svari til Heimildarinnar. „Það er augljós hagsmunaárekstur. Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku.“

Flokksmenn nú hjá VG og Miðflokki

Vísar hann þar í átök innan flokksins í byrjun sumars í fyrra þegar ný stjórn var kjörin og Gunnar Smári missti sæti sitt í stjórn. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi flokksins og kjörinn pólitískur leiðtogi hans um skeið, bauð sig fram undir merkjum Vinstrisins til borgarstjórnar í vor.

Deilur stóðu einnig um félagið Vorstjörnuna, fjölmiðilinn Samstöðina og húsnæði flokksins við Bolholt 6, sem flokknum var vísað úr en hann leigir nú rými af MÍR, Menningartengslum Íslands og Rússlands, við Hverfisgötu.

„Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins?“

„Svo stóð hún [Sanna] og Sara Hildardóttir fyrir þeim gjörningi að henda Sósíalistaflokknum út úr húsnæði sínu, mættu síðar á fund flokksins með öskurhávaða og stofnuðu loks mótframboð gegn flokknum,“ skrifar Jón Ferdínand. „Þætti einhverjum eðlilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir myndi kæra landsfund Samfylkingarinnar ef hún fengi ekki að vera þátttakandi í honum? Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins? Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þá má nefna að meðal fyrrum félaga sem eru ekki lengur í félagatali Sósíalistaflokksins eru einstaklingar sem gegna virkum trúnaðarstörfum fyrir VG og einn starfandi þingmaður Miðflokksins.“

Hann hvetur fólk til að hætta árásum á starf Sósíalistaflokksins. „Við erum engir óvinir né andstæðingar, heldur samherjar í pólitískum skoðunum allra jafna, það er því bara innilega miður að þau tali í orði um samstöðu fyrir kosningar en hegði sér svo með allt öðrum hætti að þeim loknum. Sósíalistaflokkur Íslands óskar hins vegar Söru og Sönnu og þeirra hópi alls hins besta og velfarnaðar í sínum störfum fyrir Vor til Vinstri og Vinstrið,“ skrifar Jón Ferdínand.

Aldrei verið skráður í annan flokk

Skilaboð Jóns Ferdínands voru sömuleiðis birt sem skoðanapistill hjá Mannlíf í dag og deilir Gunnar Smári honum sömuleiðis í hópnum Rauði þráðurinn.

„Þarna kemur fram að nýr formaður Sósíalistaflokksins rak fólk úr flokknum án þess að hafa til þess nokkra heimild, sendi ekki fundarboð á aðra en þá félaga sem voru honum þóknanlegir,“ skrifar Gunnar Smári.

„Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenning“

„Hann segir að það sé jafn fráleitt að senda mér boð á aðalfund flokksins, þar sem ég hef verið skráður félagi frá upphafi og aldrei verið skráður í eða unnið fyrir annan flokk, og að boða Guðrúnu Hafsteinsdóttur á aðalfund Samfylkingarinnar. Magnað að svona lið skuli bjóða sig fram til að vinna fyrir almenning, tilbúið a sveigja allar reglur að eigin þörfum. Og svona líka ánægður með sig yfir þessu öllu, að springa úr monti.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu