Forsvarsmaður starfsmannaleigu þarf að endurgreiða erlendum starfsmanni rúmlega hundrað þúsund krónur eftir að hafa hækkað leigu á litlu herbergi starfsmannsins með ólögmætum hætti. Þá þarf hann einnig að endurgreiða sektargreiðslu sem var lögð á starfsmanninn vegna meintra brota á húsreglum sem starfsmaðurinn þarf að undirgangast.
Úrskurðurinn var kveðinn upp í kærunefnd húsamála og veitir sjaldgæfa innsýn í viðskiptasamband starfsmannaleiga og erlendra iðnaðarmanna. Slíkur rekstur hefur oft verið umdeildur. Þorleifur Friðriksson, doktor í sagnfræði skrifaði meðal annars harða gagnrýni á slíka starfsemi og kallaði eftir betri lögum þessu tengdu árið 2024.
Sjö fermetrar og strangar húsreglur
Fram kemur í úrskurðinum að iðnaðamaðurinn sé rafvirki. Hann og forsvarsmaður starfsmannaleigu gerðu á milli sín leigusamning í nóvember 2024. Rafvirkinn leigði 7 fermetra herbergi af vinnuveitanda sínum fyrir 90 þúsund krónur á mánuði. Leigan var dregin af launum starfsmannsins. Rafvirkinn segist hafa átt minniháttar orðaskak við ofbeldisfullan leigjanda …














































Athugasemdir