Fjölmiðlafræðingur: „Auðvitað var Mogginn í kosningagír fyrir Sjálfstæðisflokkinn“

Morg­un­blaðið dró aug­ljós­lega taum Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kosn­ingar en var ekki endi­lega ósann­gjarn í umfjöllun sinni að mati fjöl­miðla­fræð­ings. Hann segir fólk með miklar skoð­anir upp­lifa fjöl­miðla öðru­vísi en aðrir.

Fjölmiðlafræðingur: „Auðvitað var Mogginn í kosningagír fyrir Sjálfstæðisflokkinn“
Kosn­ingar Heim­ildin var meðal ann­ars með pall­borð þar sem öllum fram­bjóð­endum var gef­inn kostur á að koma sínum sjón­ar­miðum áleiðis. Morg­un­blaðið, Vísir og RÚV sinntu lands­byggð­inni einnig vel. Mynd: Golli

„Mín til­finn­ing er að það hafi verið svipað mynstur og árið 2024 í þing­kosn­ing­unum,“ segir Birgir Guð­munds­son, fjöl­miðla­fræð­ingur og dós­ent við fjöl­miðla­fræði Háskól­ans á Akureyri, spurður hvernig fjöl­miðlaum­fjöllun hafi verið fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Hann bíður nú eftir nið­ur­stöðum við­horfskönn­unar stjórn­mála­fólks um fjöl­miðla fyrir kosn­ing­arnar, en segir ýmis­legt hafa verið með svip­uðu móti fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2024.

Ekkert nýtt að Morgunblaðið afhjúpi sig

„Það er ekk­ert nýtt með Morg­un­blaðið, það afhjúpar sig alltaf fyrir kosn­ingar og það hefur verið talað um það frá síð­ustu öld,“ segir Birgir en Morg­un­blaðið hefur ítrekað verið gagn­rýnt fyrir að draga taum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrir því eru ákveðnar ástæður. Andrés Magn­ús­son, blaða­maður Morg­un­blaðs­ins, hefur aldrei falið sínar per­sónu­legu skoð­anir ekki frekar en Stefán Einar Stef­áns­son, sem lengi var virkur í starfi Sjálf­stæð­is­flokks. Fram hefur komið í fjöl­miðlum að hann hafi haft kosn­inga­rétt á síð­asta lands­fundi flokks­ins og sjálfur úti­lok­aði hann ekki að bjóða sig fram til …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár