Staðan í borginni hafði meiri áhrif en afskipti Kristrúnar

Oddviti Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi segir þunga stöðu flokks­ins í Reykja­vík hafa þyngt bar­átt­una. Bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins tekur undir en áréttar það sé ekki hægt að þakka ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar vel­gengni flokks­ins í Kópavogi.

Staðan í borginni hafði meiri áhrif en afskipti Kristrúnar
Kópa­vogur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vann mik­inn sigur í Kópavogi og náði hreinum meiri­hluta. Mynd: Golli

„Það var keyrt þungt á stöð­unni í borg­inni,“ segir Jónas Már Torfason, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópavogi en flokk­ur­inn náði að tvö­falda fjölda sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa sinna í sveit­ar­fé­lag­inu, úr einum í tvo. Það breytti því ekki að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn náði stór­sigri og hreinum meiri­hluta.

Afskipti Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, af sveit­ar­stjórn­ar­málum í Kópavogi var umdeild og vissu­lega óhefð­bundin miðað við síð­ustu for­sæt­is­ráð­herra sem liggja oft­ast lágt í slíkum bar­áttum.

Þriðji maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Andri Steinn Hilm­ars­son, segir áhrif hennar ofmæld í umræð­unni, stór­sigur Sjálf­stæð­is­flokks­ins megi ekki rekja að svo miklu leyti til meints afleiks for­sæt­is­ráð­herr­ans, heldur hafi staða fall­ins meiri­hluta í borg­inni vegið þyngra í umræð­unni.

Pirraði andstæðinga

„Við erum sátt í Kópavogi, við tvö­föld­uðum fylgi okkar,“ segir Jónas Már og bendir á að Sam­fylk­ingin í Kópavogi hafi þrátt fyrir allt fengið öfl­ug­ustu kosn­ing­una af öllum fram­boðum Sam­fylk­ing­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Flokk­ur­inn fékk rétt tæp nítján pró­sent …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár