Auknar áhyggjur af spillingu Donalds Trump í embætti

Banda­ríkja­for­seti hefur keypt hluta­bréf í félögum sem ákvarð­anir hans og orð hafa áhrif á. Dóms­mála­ráð­herra hans setur saman bóta­sjóð og refsi­leysi fyrir Trump­fjöl­skyld­una varð­andi skatt­svik hefur verið inn­leitt.

Auknar áhyggjur af spillingu Donalds Trump í embætti
Gagnrýna spill­ingu Chuck Schumer, demókrati frá New York og leið­togi minni­hlut­ans í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings, er hér á frétta­manna­fundi eftir viku­legan stefnu­mót­un­ar­há­deg­is­verð með demókrötum í öld­unga­deild­inni í þing­hús­inu í Washington, DC í gær. Forysta demókrata í öld­unga­deild­inni ræddi ýmis mál, þar á meðal nýlegan stuðn­ing Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta í auka­kosn­ingum í Texas og yfir­heyrslu Todds Blanch, starf­andi dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hjá und­ir­nefnd fjár­laga­nefndar öld­unga­deild­ar­innar, vegna umdeildra mála sem sögð eru til marks um hags­muna­á­rekstur for­set­ans. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti átti í við­skiptum með hluta­bréf í 3.700 til­fellum upp á ígildi sam­tals millj­arða króna á síð­asta árs­fjórð­ungi.

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að verð­bréfa­miðl­arar á Wall Street séu slegnir yfir umfangi við­skipt­anna. Fyrri for­setar hafa á síð­ustu ára­tugum annað hvort sett eignir sínar í sjóð, losað þær eða skapað arms­lengd með öðrum hætti. Varað er við því að alvar­legur hags­muna­á­rekstur eigi sér stað þegar for­seti getur hagn­ast per­sónu­lega af ákvörð­unum sínum í stöðu sem er í umboði almenn­ings. 

Til við­bótar hefur dóms­mála­ráð­herra Trumps ákveðið að Trump-fjöl­skyldan fái frið­helgi vegna skatta­mála.

Keypt í félögum undir áhrifum af forsetavaldi

Við­skipta­reikn­ingur Trumps keypti í félögum eins og Nvida, Oracle, Microsoft, Boeing og Costco. Í hverju og einu félagi keypti hann fyrir um milljón Banda­ríkja­dala, eða um 124 millj­ónir íslenskra króna.

Á sama tíma heldur tengda­sonur Trumps utan um hund­ruð millj­arða við­skipti í Katar, …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Margur verður af aurum api eins og segir í Hávamálum, en er ekki almenningur sem lætur það viðgangast að örfáar hræður geti eignast ótakmarkaðann auð sem eru aparnir, með fullri virðingu fyrir öpum.
    0
  • Friðrik Helgason skrifaði
    Kemur alltaf betur og betur í ljós hversu mikill drullusokkur forseti BNA er
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár