Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum

Íris Helga Jón­atans­dóttir vill að rétt­ar­höldum yfir henni verði lokað fyrir almenn­ing. Sak­sókn­ari og rétt­ar­gæslu­menn mót­mæltu þeirri kröfu ský­laust og verður réttað sér­stak­lega um þann anga máls­ins.

Meintur eltihrellir vill loka réttarhöldunum
Íris Helga Jón­atans­dóttir Neitar allri sök. Mynd: Golli

Lögmaður Írisar Helgu Jón­atans­dóttur fór fram á að rétt­ar­höld yfir henni væru lokuð almenn­ingi. Bæði sak­sókn­ari og rétt­ar­gæslu­menn neit­uðu að fall­ast á það og því fer fram þing­hald næst­kom­andi mánu­dag þar sem réttað verður sér­stak­lega um þennan hluta máls­ins.

Íris Helga hefur verið ákærð fyrir umsát­ursein­elti, brot á barna­vernd­ar­lögum, rangar sak­ar­giftir, skjala­fals, hót­anir og æru­meið­andi aðdrótt­anir. Ákæran er óvenju­mikil að umfangi en listað er upp hátt í 70 atvik sem hún er ákærð fyrir og ná þau afbrot yfir ára­bilin 2022 til 2025. 

Ekki er ákært fyrir birt­ingu á dán­ar­fregn í Morg­un­blað­inu þar sem einn þol­andi hennar sagði opin­ber­lega að han teldi það hluta af umsát­ursein­elt­inu sem hann hafði mátt þola af hennar hálfu. Það átti sér stað nú í apríl síð­ast­liðnum. Var Íris þá hand­tekin af lög­reglu og farið fram á gæslu­varð­hald, …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Það væri betra fyrir hana að viðurkenna það sem hún gerði. Ákveðnar persónuleikagerðir taka til sín neikvæða orku frá samfélagsmiðlum sem berst yfir í raunveruleikann. Samfélagsmiðlafyrirtækin vita þetta og nýta sér það í hagnaðarskyni. Það afsakar Íris Helga ekki fyrir það sem hún gerði, en samfélagsmiðlar fá ekki nægilega sök.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár