Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar á þriðjudag

Oddvitar í fram­boði til borg­ar­stjórnar mæt­ast í beinni útsend­ingu í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar á þriðju­dag, þegar loka­sprettur kosn­inga­bar­átt­unnar hefst. Salurinn er opinn áhorf­endum.

Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar á þriðjudag
Stýrir umræðum Aðal­steinn Kjart­ans­son, aðstoð­ar­rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, stýrir umræð­unum í Tjarn­ar­bíói, líkt og í fyrri kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar. Mynd: Golli

Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í Tjarn­ar­bíói þriðju­dag­inn 12. maí klukkan 20.00. Kapp­ræð­urnar, sem bera yfir­skrift­ina Pressa í borg­inni, standa í 90 mín­útur og verða opnar áhorf­endum í sal.

Fyrir svörum sitja odd­vitar þeirra flokka sem eru í fram­boði til borg­ar­stjórnar og mæl­ast með að minnsta kosti 1,5 pró­senta fylgi í könn­unum síð­ustu fjög­urra vikna. Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður Heim­ild­ar­innar, stýrir umræð­unum.

Miðasala á kapp­ræð­urnar er hafin á TIX. Áskrif­endur Heim­ild­ar­innar njóta afslátt­ar­kjara á miðum og fá sendar leið­bein­ingar um hvernig nýta megi afslátt­inn. 

Kapp­ræð­unum verður streymt í beinni útsend­ingu sem verður opin öllum í boði Hringdu. Fram­boðum er heim­ilt að nýta myndefni úr kapp­ræð­unum, að því gefnu að upp­runa sé getið og vísað sé á upp­tök­una af fund­inum.

  • Hvenær: 12. maí klukkan 20.00–21.30
  • Húsið opnar: 19.00
  • Hvar: Tjarn­ar­bíó, Tjarn­ar­götu 12, 101 Reykja­vík
  • Miðasala: Hafin á TIX.is
  • Streymi: Opið öllum í beinni útsend­ingu í boði Hringdu

Kapp­ræð­urnar eru liður í umfjöllun Heim­ild­ar­innar um borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og eiga að gefa kjós­endum skýra mynd af áherslum fram­boð­anna, ágrein­ings­málum og þeim val­kostum sem standa til boða í Reykja­vík.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þór Elís Pálsson skrifaði
    Hvar kemst maður inn á streymið? Finn engan link hér á upplýsingasíðu netsíðunnar um oddvitaumræðuna nú á eftir
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár