Íslendingum stefnt í stórar blokkir

Rof er á milli vilja fólks til búsetu­forms og þeirra bygg­inga sem verið er að reisa á Íslandi. Blokkir eru yfir­gnæf­andi meiri­hluti íbúð­ar­hús­næðis sem byggt er, en fáir stefna á að búa þar.

Íslendingum stefnt í stórar blokkir
Flutn­ingur í stór fjöl­býli Aðeins 7% aðspurðra í könnun á vegum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar vildu búa í stóru fjöl­býli eftir fimm ár. Hins vegar eru nú 80% íbúða í bygg­ingu í stóru fjöl­býli í Reykja­vík. Myndin er tekin á Völlunum í Hafn­ar­firði á dög­unum. Mynd: Golli

Umskipti eru yfir­stand­andi og yfir­vof­andi í búsetu­háttum og hvers­dags­um­hverfi Íslend­inga. Þau fel­ast í því að meira og meira er byggt af stórum fjöl­býl­is­húsum, eða blokkum, en færri sér­býli, rað­hús og smærri fjöl­býl­is­hús. Það sem verra er, að mun lægra hlut­fall fólks stefnir á að búa í blokk heldur en íbúðir í bygg­ingu gera ráð fyrir. 

Við fyrstu taln­ingu á teg­undum fjöl­býl­is­húsa í bygg­ingu í mars kom í ljós að 80 pró­sent íbúða í Reykja­vík og yfir 90 pró­sent íbúða sem verið er að byggja í Kópavogi eru í svoköll­uðu „stóru fjöl­býli“. 

Á sama tíma sýnir könnun meðal almenn­ings að ein­ungis 6 pró­sent fólks telur að þau „muni búa eftir fimm ár“ í stóru fjöl­býli, sam­kvæmt könnun Prósents fyrir HMS.

Íslend­ingar eru nú þegar yfir með­al­tali Evr­ópu­þjóða í búsetu í fjöl­býli. 

Til­færsla mann­fjöld­ans yfir í stórar blokkir er hluti af auk­inni þétt­býl­i­svæð­ingu sam­fé­lags­ins, en á síð­ustu árum hefur henni verið …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Takk fyrir þessa góðu og þörfu grein.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þétting byggðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár