Velkomin í Sunnu­smára Sunnu­smári í Kópavogi, suður af Smára­lind, er ein af helstu þétt­ing­ar­reit­unum sem fylgir komu Borg­ar­línu. Þétt­leik­inn þar er við hæstu mörk sem boðuð voru í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en þó eru mun þétt­ari hverfi komin í bygg­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Skuggaborgin: Margföld þétting byggðar

Arki­tektar og aðrir sér­fræð­ingar hafa áhyggjur af óbæri­legum þétt­leika til­ver­unnar í nýjum hverfum sem rísa í Reykja­vík og Kópavogi.

Stórhuga áform borg­ar­stjórnar í Reykja­vík og bæj­ar­stjórnar í Kópavogi við þétt­ingu byggðar eru ekki aðeins á teikni­borð­inu heldur eru bygg­ingar byrj­aðar að rísa, þvert á áhyggjur margra sér­fræð­inga.

Án þess að mikil umræða hafi átt sér stað um það hafa við­mið um þétt­leika byggðar á nýjum bygg­ing­areitum í Reykja­vík í reynd verið marg­földuð frá því sem áður var. 

Þéttasta byggingamagn sögunnar

Í jan­úar síð­ast­liðnum sendi umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur­borgar frá sér til­kynn­ingu um gild­is­töku aðal­skipu­lags til árs­ins 2040, sem sagt var „upp­færð“ útgáfa fyrra skipu­lags sem sam­þykkt var 2014. Í upp­færðu skipu­lag­inu var hins vegar í raun inn­sigluð grund­vall­ar­breyt­ing á eðli byggðar. 

Á árum áður var miðað við að þétt­leiki byggðar næmi 60 íbúðum á hekt­ara, líkt og sem dæmi í blönd­uðu byggð­inni á Melunum í Vesturbæ Reykja­víkur og í fjöl­býl­is­húsa­byggð­inni í Hóla­hverf­inu í Breið­holti. Í nýjum hverfum sem hafa verið sam­þykkt og eru sum þegar komin í bygg­ingu er …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (15)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HS
    Hjalti Sigurjónsson skrifaði
    Myndirnar eru óeðlilega dimmar, það er búið að eiga við þær. Í húsasundum verður einfaldlega eins og hvar annars staðar í skugga á sumardegi. Það væri áhugavert að sjá hverju munar í sólskinsfjöldastunda við jörðu (eða 1.5 m hæð) hér og í nákvæmlega eins hverfi í Danmörku. Hönnuðirnir ættu að hafa tæki til að gera þannig greiningu.
    0
  • Gunnar Valdimarsson skrifaði
    Mannhatursstefna, lygar og yfirgangur.
    1
  • Kristrún Heimisdóttir skrifaði
    Takk fyrir frábæra grein. Þetta er svo alvarlegt mál að leitun er að öðru eins.
    3
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Þessi grein hefði átt að birtast fyrir kosningar.
    2
  • Finnur Jónsson skrifaði
    Ein athugasemd:
    Það má vera að Reykjavík sé ein dreifbýlasta höfuðborg heims. Flestallar höfuðborgir í heiminum eru hinsvegar margfalt stærri en Reykjavík. Þetta er því ónothæfur samanburður. Þekkt er að stórar borgir eru dæmigert þéttbyggðari en litlar borgir, sérstaklega miðjukjarnar. Ef Reykjavík er borin saman við álíka stórar borgir í Evrópu er hún hvorki þéttbýlli eða dreifbýlli en gengur og gerist.
    Sjá má umfjöllun um þetta í Facebook grúppunni "Borgarlína - umræða".
    5
    • Gunnar Valdimarsson skrifaði
      Reykjavík er ekki dreifbýlasta borg í heimi. Það er hluti af áróðrinum hjá borgarstjórn og er helber og bláköld lýgi
      1
  • Thora Bergny skrifaði
    Takk fyrir mjög gagnlega umfjöllun. Þetta er hrikaleg þróun.
    2
  • Gekk Lindargötuna gömlu hér á dögunum, fannst sem ég væri komin inn í bók eftir Dickens.
    3
  • Finnur Jónsson skrifaði
    Takk fyrir góða samantekt!
    2
  • S
    swain skrifaði
    Reykjavík stendur við sjó, strandlengjan falleg og fallegur fjallahringur við sjóndeildarhring frá Reykjanesi til Esju til Snæfellsness. Væri ekki nær að skipuleggja byggð svo sem flestir gætu notið útsýnis og útivistar frekar en að þröngva fólki saman í steypklessur sem standa hvor oní annari?
    7
  • A Islandi ætti ekki að leyfa þéttari bygð en að sólarljós á hádegi á jafndægrum geti baðað allar suðurhliðar húsa.
    9
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Nú skal selja sólarljós
    4
  • Ágætis samantekt á þeirri staðreynd að það er minna beint sólarljós í íbúðum á mörgum þéttingarreitum. Fólk er reyndar löngu flutt inn á mörgum þessum stöðum það hefði verið áhugavert að heyra hvernig þeim líður að búa svona og hvernig það samræmist þeirra lífstíl.
    9
  • KÞM
    Kristín Þ. Magnúsdóttir skrifaði
    1. Börn eru aldrei að leika utandyra í dag nema á skólalóð eða iþróttavelli.
    2. Sést aldrei til sólar í Reykjavík og ef að það er sól þá er farið í næstu sundlaug.
    3. Íslendingar fara til Tene eða út á land í sól
    4. Farið til Berlínar þar sem garðar við fjölbýlishús eru núll en skikk að hafa græn svæði/garða.
    5. Þessi túnmenning Íslendinga er arfur sveitamenningarinnar og aldrei sést nokkur maður þar.
    -4
    • Gunnar Valdimarsson skrifaði
      Þvílik þvæla. Farðu sjálf til Berlínar og vertu þar. Eða kannski frekar til Pyongyang. Það er nú staðurinn til að vera á.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þétting byggðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár