Varar fólk við dimmum íbúðum í nýjum hverfum

Ekkert hámark er á þétt­ingu byggðar nærri Borg­ar­línu. Ásta Loga­dóttir, einn helsti sér­fræð­ingur í ljós­vist á Íslandi, reynir að fá sól­ar­ljós og dags­birtu bundna inn í bygg­ing­ar­reglu­gerð­ina. Hún segir það hafa verið sett í hend­urnar á almenn­ingi að gæta þess að kaupa ekki fast­eignir án heilsu­sam­legs magns af dags­birtu.

Varar fólk við dimmum íbúðum í nýjum hverfum
Greinir ljós og skugga Eftir að hafa starfað í Danmörku varð Ásta Loga­dóttir verk­fræð­ingur þess áskynja að Íslend­ingar hafa inn­byggt hömlu­leysi í byggð­ar­þétt­ingu í reglu­gerðir. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Íbúar í nýrri, þéttri byggð í Reykja­vík og Kópavogi geta margir átt von á því að mun meira myrkur verði á heim­ili þeirra en almennt hefur þekkst á Íslandi hingað til. 

Verk­fræð­ing­ur­inn Ásta Loga­dóttir, einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins í svo­kall­aðri ljós­vist, sem lýsir því hvernig dags­birta og sól­ar­ljós berst að bygg­ingum og inn í þær, hefur áhyggjur af heilsu­fars­legum áhrifum þétt­ingar byggðar, þótt hún telji þétt­ingu byggðar mik­il­væga „ef hún er gerð á réttan hátt“.

Ásta hefur beitt sér fyrir því að bygg­ing­ar­reglu­gerð verði upp­færð til að taka mið af ljós­vist, fremur en ein­göngu hljóð­vist, eins og nú er. Hún segir að eftir þétt­ingu byggðar hafi ábyrgðin verið sett yfir á almenn­ing að velja sér hús­næði sem vinnur ekki gegn heils­unni.

Munur á Íslandi og Danmörku

„Reglu­verkið okkar passar engan veg­inn upp á gæðin hvað varðar dags­ljós,“ segir Ásta. Áhyggjur hennar af íslensku skipu­lagi uxu með …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hörmulegt að svona hrikaleg mistök geti átt sér stað. Algerlega óhæft fólk sem stjórnar þessum málum hjá sveitarfélögunum. Í raun og veru er verið að misþyrma tilvonandi íbúum þessarra fjölbýlishúsa ef þá einhverjir neyðast til að flytja inn í þau vegna þess að þeir hafa ekki annarra kosta völ. Í raun og veru er þetta mannvonska þó stjórnmálafólkið geri sér ekki grein fyrir því.
    1
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Þarna er fjallað um einhver helstu afreksverk krataeðilsfrömuðanna Dags bé og Hjalla nokkurs, sem kenndur er við holur, einkum holur á götum borgarinnar sem ku vera í milljonatali úr um allan bæ.
    -2
  • Elísabet Jónsdóttir skrifaði
    held að við verðum að fara að skoða þessi mál mun betur
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þétting byggðar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár