Fæðingartíðni á Íslandi enn með því hæsta á Norðurlöndum

Fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi er enn hærri en víð­ast á Norð­ur­löndum, þrátt fyrir sögu­lega lága frjó­semi, færri ungar mæður og hækk­andi með­al­aldur frumbyrja.

Fæðingartíðni á Íslandi enn með því hæsta á Norðurlöndum
Fleiri Alls fædd­ust 4.387 lif­andi börn á Íslandi í fyrra, sem er fjölgun frá árinu áður. Fæð­ing­ar­tíðni stendur hins vegar í stað. Mynd: Pexels

Fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi er áfram hærri en víð­ast hvar á Norð­ur­löndum, þrátt fyrir að frjó­semi hér á landi sé sögu­lega lág. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar um fædd börn árið 2025.

Alls fædd­ust 4.387 lif­andi börn á Íslandi í fyrra, sem er lít­ils­háttar fjölgun frá árinu 2024 þegar 4.311 börn fædd­ust. Drengir voru 2.292 og stúlkur 2.095, sem jafn­gildir 1.094 drengjum á hverjar 1.000 stúlkur.

Frjósemi kvenna búsettra á Íslandi mæld­ist 1,56 börn á hverja konu árið 2025. Það er sama hlut­fall og árið áður og það lægsta sem mælst hefur hér á landi frá upp­hafi mæl­inga árið 1853, að und­an­skildu árinu 2024 þegar frjó­semin var einnig 1,56.

Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn á hverja konu til að mann­fjöldi hald­ist óbreyttur til lengri tíma án aðflutn­ings. Frjósemi hefur ekki farið yfir 2,0 börn á hverja konu á Íslandi …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár