Með miklu stærra bílastæði en þú

Herra Hnetu­smjör held­ur áfram að rappa um eigna­stöðu sína og tekjuflæði og bæt­ir við lóð, bíl og stæði.

Með miklu stærra bílastæði en þú
Herra Hnetusmjör Árni Páll Árnason hefur gefið út nýja plötu þar sem hann lýsir sterkum tekju- og eignagrunni sem sýni yfirburði hans.

Hver myndi ekki vilja hitta miðaldra frænda í fermingarveislu sem montar sig af stærð bílastæðisins síns? Þessi frændi er vaknaður í líki Herra Hnetusmjörs 2026. 

Fátt skilgreinir stöðu íslenskrar poppmenningar síðustu ár eins vel og Herra Hnetusmjör, Árni Páll Árnason, sem kallar sig líka Kópboi. Ef marka má þemað í nýjustu plötu Árna Páls er hún stöðnuð. Kópurinn selur ennþá en þroskaferlið virðist bara liggja í því hvernig eignastaðan sem hann rappar um breytist í miðaldra.

Þetta fylgdi þroskaferli þjóðarinnar. Eftir banka- og krónuhrunið 2008 færðist gildismatið frá efnishyggju og lífsgæðakapphlaupi yfir í meiri áherslu á sannleika, jafnræði og sjálfbært líf. Nokkrum árum síðar var risin ný efnishyggjubylgja blönduð af róttækum rembingi, þar sem ungir piltar, oft auðbörn og jafnvel kvótaerfingjar, röppuðu sveiflandi seðlabúntum um hvað þeir ættu mikið meira en aðrir.

Fyrirmyndin var sótt til ungra Bandríkjamanna, oft úr jaðarhópum, sem röppuðu um að hafa barist úr fátækt og ofbeldi. Líkt og flestir aðrir íslenskir rapparar kemur Herra Hnetusmjör hins vegar úr annarri átt. Hann er þrítugur ráðherrasonur úr úthverfi Kópavogs, sem syngur nú meira og meira um tekjustrauma sína og eiginfjárstöðu - og stærð lóðarinnar og bílaplansins. 

Lóðamál

Á nýju plötunni sinni Tónlist til að sigra við syngur Herra Hnetusmjör að hann þurfi ekki þurfa að hafa áhyggjur af nágrönnum sínum, eins og segir í sífellu í viðlaginu við lagið Nágrannar: „1.700 fermetra lóð, hvaða nágranna?“

Það þykir stór lóð, enda segir Árni Páll frá því í öðru lagi að hann komi úr úthverfi Kópavogs: „Enda er það sem ég ólst upp í tveir núll þrír kóp“.

Þessu fylgir hann eftir í öðru lagi, sem heitir 24 tommur og er tilvísun í dekkjastærð bifreiðarinnar.

„Bíllinn minn er stór, þú heyrir þegar við komum. Getur fundið mig í Kóp á 24 tommum.“

Í þriðja laginu, „Ég myndi líka hata mig“, smellur þetta saman. Þar lýsir hann því hvernig hann er betri og vinsælli en aðrir og segir: „Innkeyrslan mín er stærri en íbúðin þín.“ 

Allt í einu er hvert lagið á fætur öðru er eins og hróðug útgáfa af kosningaloforðum Flokks fólksins: Fæði, klæði, húsnæði, bílastæði.

Að sigra lífsgæðakapphlaupið

Mörg af vinsælustu lögum Herra Hnetusmjörs í fortíðinni hafa fjallað um tekjuöflunina hans og eignastöðuna í einhvers konar viðskiptafræðivæðingu íslenskrar poppmenningar.

Það snýst um að sýna að hann sé betri en aðrir, eins og öfugt Jantelov.

Í nýjustu plötunni sinni kemst Árni Páll í klímax í síðasta laginu, Sólsetri.

„Ég gæti kallað þetta gott. Ég er kominn lengra en nokkur maður hefur horft,“ syngur hann í rómantískum tón. „Ungur að aldri. Nú í fyrsta sinn sé ég engan hærri tind þegar ég er kominn upp á topp.“

Hann útskýrði í viðtali við RÚV í vikunni að hann liti á nýju plötuna sem sigurhring eftir velgengni poppsveitarinnar Iceguys.

En um leið er hún framlenging af fyrri áherslu á að vera með „hálfa milljón í vasanum“ (2019), „úttroðna vasa“ (2023), með seðlabúnt og kaupa listaverk, eins og í laginu Elli Egils (2024) sem varð eitt það vinsælasta á Íslandi það árið. „Ég set búnt á skenkinn, Ella Egils á vegginn.“

Elli Egils er listamaður búsettur í LA sem er meðal annars orðinn þekktur fyrir að mála fjallið Herðubreið á hálendinu fyrir norðan, sem hann sagðist í viðtali þó aldrei hafa séð sjálfur. Verk hans eru orðin algeng sjón í innlitsþáttum og ákveðin táknmynd nútímans fyrir velgengni efri stéttar Íslendinga.

Í sama lagi söng Árni Páll að hann væri kominn með „Range Rover í hlaðið“ og „Versace slopp inná baði“, áður en hann færði sig nú alla leið yfir í að syngja um lóðina, bílaplanið og dekkjastærðina.

Til að kóróna tilfærslu sína yfir í miðlífið syngur Árni Páll á nýjustu plötunni: „Það eru 50% líkur á að þú finnir mig á Spáni.“ 

Reikningagerðin

Á öðrum stað fjallar hann ekki einungis um efnahagsreikning sinn heldur reikningagerðina. „Ég geri enga kröfu nema krafa mín sé greidd,“ syngur hann.

„Gjaldþrot þegar þú greiddir, það sem ég greiði skattinum,“ bætir hann við. 

Í laginu Labbilabb árið 2017, sem fjallaði um tekjur hans af því að syngja á viðburðum, var boðskapurinn hins vegar að hann borgaði ekki skatta. „Ég er með peninginn í umslagi (allt svart)“.

Kópbois ehf., félag í eigu Árna Páls Árnasonar, Herra Hnetusmjörs, hagnaðist um 66 milljónir króna á síðasta ári, einmitt á því að rappa um tekjuvöxtinn sinn. „Rapppeningar,“ syngur hann.

Núna syngur hann um að skrifa ævisögu.

„Ég rita ævisögu í notes, þarf ekkert leikrit,“ segir hann, en ævisaga hans var skrifuð af öðrum og kom út árið 2020, þegar hann var 24 ára. Í lok hennar sagðist hann ætla að einbeita sér að því að safna fasteignum. Um það virðist hann rappa í dag.

Spurningin er hvort Herra Hnetusmjör sé ennþá spegill á tíðarandann okkar, eða hvort leiðir séu að skilja.

Þessi boðskapur, sérstaklega í taktfastri tónlist sem er án efa sú ein best útfærða á Íslandi, getur vel valdeflt fólk, hvatt það áfram í lífsgæðakapphlaupinu, kauphlaupum eins og öðrum lífshlaupum sem snúast um að koma í mark.

En yfirborðskenndur miðaldra metingur um að innkeyrslan mín sé stærri en innkeyrslan þín getur líka framkallað hrottafenginn aulahroll. Eins og sólin sé risin eftir partý sem var orðið skrítið, eins og við monthanagal, nógu afgerandi skil til þess að eitthvað allt annað og öðruvísi gildismat sé framundan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár