Lýsti myrkum hugsunum áður en hann skaut börnin sín til bana

Eftir að hafa ráð­ist á eig­in­konu sína skaut faðir átta börn til bana, þar af voru sjö hans eigin. Árás­armað­ur­inn hafði glímt við and­lega erf­ið­leika og lýst myrkum hugs­unum. Eig­in­konan er sögð hafa viljað skilnað áður en árásin átti sér stað. Slíkar árásir koma upp á fimm daga fresti í Banda­ríkj­unum, þótt þetta sé ban­væn­asta skotárásin þar í landi síð­ustu tvö ár.

Lýsti myrkum hugsunum áður en hann skaut börnin sín til bana
Á vett­vangi Lög­reglu­þjónn ræðir við fjöl­miðla á vett­vangi skotárás­ar­innar. Í bak­grunni er húsið þar sem börn­unum var ráð­inn bani.

Snemma sunnu­dags­morg­uns í suð­ur­rík­inu Louisiana í Banda­ríkj­unum skaut karl­maður átta börn til bana, þar af voru sjö hans eigin. Um var að ræða heim­il­is­of­beldi, að sögn lög­reglu þar í landi. 

Í gráu húsi í borg­inni Shreveport áttu fjöldamorðin sér stað, en um er að ræða mann­skæð­ustu skotárás í Banda­ríkj­unum síð­ustu tvö ár, sam­kvæmt gögnum frá Gun Violence Archive. 

Þrír drengir og fimm stúlkur á aldr­inum þriggja til ell­efu ára voru skotin til bana. Sjö barn­anna voru systk­ini, en frændsystk­ini þeirra lést einnig í árásinni. Níunda barnið slapp með meiðsli sem eru ekki talin lífs­hættu­leg, en það bjarg­aði sér með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. 

Fimm skotför á hurðinni

Á hvítum dyrum lít­ils tveggja hæða hús mátti sjá fimm skot­för, að sögn mynda­töku­manns AFP sem fór á vett­vang. Fólk hefur lagt blóm­vendi við húsið til að minn­ast barn­anna. 

Nágranni, hinn 72 ára gamli Freddie Montgomery, sagð­ist hafa séð lög­reglu bera lík úr hús­inu að morgni dags. „Á sama tíma í gær voru öll þessi börn úti í garði að leika sér. Hann sat á svöl­unum,“ sagði Montgomery og átti við föður þeirra. 

Hann hét Shamar Elkins og var 31 árs gam­all. Hann flúði af vett­vangi en var skot­inn til bana af lög­reglu í eft­ir­för sem hófst eftir að hann rændi bif­reið. „Að lok­inni eft­ir­för­inni steig hinn grun­aði út úr bif­reið­inni með skot­vopn þannig að lög­reglu­menn okkar urðu að lokum að gera hann óvirkan,“ sagði lög­reglu­mað­ur­inn Chris Bordelon við fjöl­miðla. 

Náði að gera nágranna viðvart 

Börnin sem lét­ust hafa verið nafn­greind af mæðrum sínum sem Jayla Elkins, 3 ára, Shayla Elkins, 5 ára, Kayla Pugh, 6 ára, Layla Pugh, 7 ára, Marka­ydon Pugh, 10 ára, Sariahh Snow, 11 ára, Khed­arrion Snow, 6 ára og Braylon Snow, 5 ára.

Að auki eru tvær konur í lífs­hættu, þar á meðal móðir sumra barn­anna sem létu lífið. Sjón­varps­stöðin KTBS greindi frá því að kon­urnar tvær hefðu verið skotnar í höf­uðið. Í sam­tali við AFP greindi lög­reglan frá því að önnur konan, sem var skotin í neðri hluta and­lits, hafi náð að gera nágranna við­vart. Hann hringdi síðan í neyð­ar­núm­erið 911 á milli klukkan 5:00 og 5:30 að morgni að stað­ar­tíma.

Rannsókn máls­ins stendur yfir og reynir lög­reglan að kom­ast að ástæðum verkn­að­ar­ins, sem var fram­inn á þremur mis­mun­andi stöðum. „Við teljum að hann sé sá eini sem skaut,“ sagði lög­reglu­mað­ur­inn Bordelon og lýsti atvik­inu sem heim­il­is­of­beldi. Talið er að Elkins hafi fyrst skotið eig­in­konu sína og móður barn­anna, og farið þaðan á annað heim­ili þar sem hann drap börnin.

Lýsti dökkum hugsunum

Lögregla sagði að Elkins hefði verið hand­tek­inn árið 2019 í tengslum við vopna­mál þar sem hann ját­aði sök, en ekki væri vitað um önnur til­vik heim­il­is­of­beldis í for­tíð hans. Í því til­viki hafði hann tekið skamm­byssu úr buxna­streng sínum og skotið fimm skotum að bíl eftir að annar öku­maður beindi vopni að honum. Eitt skotið fannst nálægt skóla þar sem börn voru að leika sér úti.

Banda­rískir fjöl­miðlar greindu frá því að hann hefði starfað í þjóð­varð­liði Louisiana í sjö ár áður en hann hætti. Á því tíma­bili var hann aldrei sendur í hern­að­ar­að­gerðir.

Samkvæmt The New York Times hafði Elkins átt í hjóna­bands­vanda og glímt við and­lega van­líðan. Hafði hann sagt stjúp­föður sínum að eig­in­konan vildi skilnað og að hann væri að „drukkna í myrkum hugs­unum.“

Sjálfs­vígs­hugs­anir herj­uðu á hann, hefur mið­ill­inn eftir fjöl­skyldu­með­limum. Á páska­dag hringdi hann örvænt­ing­ar­fullur og grát­andi í móður sína og stjúp­föður. Í bak­grunni mátti heyra börn að leik. „Ég sagði við hann: Þú getur sigr­ast á þessu, sama hvað þú ert að ganga í gegnum,“ rifj­aði stjúp­faðir hans upp. „Hann svar­aði: Sumir snúa ekki aftur frá sínum djöflum.“

Í kjöl­farið hafi hann sent móður sinni mynd af fjöl­skyld­unni með þeim skila­boðum að allt væri í lagi. Hann svar­aði ekki síð­ustu skila­boðum hennar. 

Á fimm daga fresti

Þá hefur mið­ill­inn eftir fjöl­skyldu­vini að ekk­ert óvenju­legt hafi verið við hegðun Elkins þegar hún sá hann um síð­ustu helgi. „Ég var að fara að gera mér kaffi þegar ég fékk sím­talið,“ sagði hún. „Börnin mín — börnin mín eru farin.“

The Guardian greinir frá því að vegna tengsla árás­armanns­ins við börnin falla morðin undir skil­grein­ingu á því „fjöl­skyldu­eyð­ingu,“ sem er hug­tak sem hefur verið notað frá níunda ára­tugnum. 

Langoft­ast hafa slík mál snú­ist um karl­mann sem beitir skot­vopni til að drepa nána fjöl­skyldu­með­limi áður en hann sviptir sig lífi eða er felldur. Í Banda­ríkj­unum eru þessi mál gjarna álitin vera ein­angr­aður harm­leikur, en rann­sókn Indi­ana­polis Star árið 2023 leiddi í ljós að þar í landi koma slík mál koma að jafn­aði upp á fimm daga fresti. 

Tilgangslaus harmleikur

Borg­ar­stjóri Shreveport, Tom Arceneaux, boð­aði blaða­manna­fundar vegna máls­ins, sem hann sagði mögu­lega versta harm­leik sem borg­ar­búar hefðu upp­lifað á und­an­förnum árum. Alls búa um 177 þús­und manns í borg­inni. 

„Þetta er hræði­legur atburður. Það er sér­stak­lega alvar­legt og sorg­legt að fórn­ar­lömbin eru öll börn,“ sagði borg­ar­stjór­inn. „Þetta minnir okkur á að illska er enn til staðar í heim­inum og að við verðum að berj­ast gegn henni með góðu og færa ljós inn í myrkrið.“

Annar tveggja öld­unga­deild­ar­þing­manna Louisiana, repúblikan­inn Bill Cassidy, lýsti atburð­inum sem „hræði­legu ofbeldi“.

Rík­is­stjóri Louisiana, Jeff Landry, sagð­ist vera „miður sín“.

Mike Johnson, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings og þing­maður svæð­is­ins, for­dæmdi atburð­inn og kall­aði hann „til­gangs­lausan harm­leik“.

„Þetta er sorg­legur morg­unn í Shreveport og við syrgjum öll,“ sagði Arceneaux borg­ar­stjóri á blaða­manna­fundi.

Í Banda­ríkj­unum eru skot­vopn víða aðgengi­leg og þús­undir manna lát­ast árlega af völdum byssu­of­beldis. Þar er hlut­fall vopna­tengdra dauðs­falla það hæsta á meðal þró­aðra ríkja. Fram að sunnu­deg­inum höfðu að minnsta kosti sex fjöldamorð verið framin á árinu. 

Engin læti bárust frá húsinu 

Liza Demming, sem býr í næsta nágrenni við einn vett­vang árás­ar­innar, sagði í sam­tali við Associated Press að örygg­is­mynda­vél hennar hefði náð mynd­skeiði af árás­armann­inum hlaupa frá hús­inu í átt að dekkja­verk­stæði. Sjálf hefði hún heyrt tvö skot. 

Síðar hafi hún séð lík eins barns­ins liggja hulið á þaki húss­ins. 

Hún hafi ekki hafa heyrt neinar deilur eða rifr­ildi fyrir árás­ina. „Það voru engin læti, engin átök,“ sagði hún. „Allt var hljótt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár