Flokkur

Heimilisofbeldi

Greinar

Erlent

Lýsti myrkum hugs­unum áður en hann skaut börnin sín til bana

Eftir að hafa ráð­ist á eig­in­konu sína skaut faðir átta börn til bana, þar af voru sjö hans eigin. Árás­armað­ur­inn hafði glímt við and­lega erf­ið­leika og lýst myrkum hugs­unum. Eig­in­konan er sögð hafa viljað skilnað áður en árásin átti sér stað. Slíkar árásir koma upp á fimm daga fresti í Banda­ríkj­unum, þótt þetta sé ban­væn­asta skotárásin þar í landi síð­ustu tvö ár.
Greining

„Það er alltaf erfitt að opna á að hafa beitt ofbeldi“

Í hverri viku leita að jafn­aði þrír ger­endur í heim­il­is­of­beld­is­málum sér aðstoðar hjá Heim­il­is­friði í fyrsta skipti. Markmið með­ferðar er að ger­endur hætti að beita ofbeldi og taki ábyrgð á sjálfum sér. Sál­fræð­ingar hjá Heim­il­is­friði segja mikið tabú að gang­ast við því að hafa beitt ofbeldi. Skömmin er enn meiri hjá konum sem eru ger­endur.
Fréttir

Yfirmenn hjá lög­reglu segja að mann­ekla bitni á þolendum ofbeldis

Yfirmenn hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segja að ef rann­saka eigi kyn­ferðis- og heim­il­is­of­beldi af mynd­ar­skap þurfi fleiri rann­sak­endur og ákærendur. Fjöldi þeirra hafi staðið í stað þrátt fyrir gríð­ar­lega aukn­ingu til­kynn­inga um brot í kjöl­far Metoo. Álagið sé komið yfir þol­mörk. Þá séu dæmi um að rann­sóknir tefj­ist vegna álags á Land­spít­ala því áverka­vott­orð skili sér seint til lög­reglu. Yfirvöld hvetji fólk til að kæra ofbeldi en láti ógert að styrkja inn­við­ina nægj­an­lega.

9 mín. lestur

Greining

Rannsókn á um eitt þús­und heim­il­is­of­beld­is­málum hætt síð­ustu tvö ár

Lögregla hætti rann­sókn á rétt tæp­lega 700 af ríf­lega 1.100 heim­il­is­of­beld­is­málum sem til­kynnt voru til lög­reglu um land allt árið 2020 og fyrstu 10 mán­uði síð­asta árs hafði rann­sókn á tæp­lega 400 heim­il­is­of­beld­is­málum verið hætt. Þetta sýna gögn úr mála­skrá lög­reglu. Mikil fjölgun hefur orðið á til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi und­an­farin ár en lög­reglu­mönnum ekki verið fjölgað í takt við það, segir lög­regla.
FréttirCovid-19

Heim­il­is­of­beldi eykst í far­aldr­inum – tvær látnar

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur óskað eftir fram­leng­ingu á gæslu­varð­haldi yfir sam­býl­is­manni konu sem fannst látin í heima­húsi í Sand­gerði að kvöldi 28. mars. Fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, dóms­mála­ráð­herra og rík­is­lög­reglu­stjóri lýsa allar yfir áhyggjum af auknu heim­il­is­of­beldi. Flest bendir til þess að tvær konur hafi verið myrtar í heima­húsum á Íslandi eftir að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn braust út.

Mest lesið undanfarið ár