Heilbrigðisstarfsfólk fái skýra heimild til að rjúfa þagnarskyldu

Annan hvern dag kemur kona með lík­am­lega áverka eftir heim­il­is­of­beldi á bráða­mót­töku Land­spít­ala. Fjórar af hverjum tíu konum sem koma vegna áverka á spít­al­ann, koma út af áverkum í kjöl­far heim­il­is­of­beldis.

Þolendur heimilisofbeldis eru útsettir fyrir stigvaxandi alvarleika áverka og alvarlegra afleiðinga á andlega og líkamlega heilsu.
Þolendur heim­il­is­of­beldis eru útsettir fyrir stig­vax­andi alvar­leika áverka og alvar­legra afleið­inga á and­lega og lík­am­lega heilsu. Mynd: Pexels

Fyr­ir­hugað er að semja laga­frum­varp í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og lög­festa skýra heim­ild fyrir heil­brigð­is­starfs­menn til þess að upp­lýsa lög­reglu um heim­il­is­of­beld­is­mál sem rata inn á þeirra borð og til að miðla nauð­syn­legum upp­lýs­ingum til lög­reglu í málum vegna sér­stak­lega hættu­legra ein­stak­linga.

Ef um ítrek­aðar komur vegna heim­il­is­of­beldis á heil­brigð­is­stofnun er að ræða, ef ófrísk kona kemur á heil­brigð­is­stofnun í kjöl­far heim­il­is­of­beldis og/eða ef þol­andi greinir frá því að hafa verið tek­inn kyrk­ing­ar­taki í tengslum við heim­il­is­of­beldi myndi sam­ræmt verk­lag heil­brigð­is­stofn­ana vegna mót­töku þolenda heim­il­is­of­beldis virkj­ast og lög­regla upp­lýst um málið.

Þá yrði með fyr­ir­hug­uðu laga­frum­varpi sett skýr laga­heim­ild fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk til að taka við og til að miðla upp­lýs­ingum til lög­reglu í málum vegna sér­stak­lega hættu­legra ein­stak­linga.

[adspot]

Áformin hafa nú verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda til kynn­ingar og umsagna. Þar segir að ýmis álita­mál hafi þegar komið upp í und­ir­bún­ings­vinnu að laga­breyt­ing­unum. Er sér­stak­lega nefndur mögu­legur fæl­ing­ar­máttur þolenda að leita sér heil­brigð­is­þjón­ustu, ábyrgð heil­brigð­is­starfs­manna að hafa sam­band við lög­reglu, mik­il­vægi þess að virða sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt þol­anda, hver yrði for­varn­ar­þáttur og skila­boð til sam­fé­lags­ins með breyt­ingu á lögum og hvernig styrkir það stöðu þolenda og aðstand­anda þeirra (oft börn) ef ekk­ert er að gert. „Þessi atriði og fleiri þarf að ræða ítar­lega með hag­höfum við gerð frum­varps,“ segir í upp­lýs­ingum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í sam­ráðs­gátt­inni.

Gæta skal fyllstu þagmælsku

Hvað heim­il­is­of­beldi varðar þá skulu heil­brigð­is­starfs­menn, sam­kvæmt gild­andi lögum, gæta fyllstu þag­mælsku um allt það sem þeir kom­ast að í starfi sínu. Aðeins má víkja frá þagn­ar­skyldu vegna brýnnar nauð­synjar, á grund­velli sam­þykkis sjúk­lings eða sam­kvæmt ákvæðum ann­arra laga. „Skil­yrðið um brýna nauð­syn getur talist upp­fyllt í heim­il­is­of­beld­is­málum en það hefur reynst vera heldur mats­kennt og þolendum þar með ekki endi­lega til hags­bóta,“ segir í sam­an­tekt ráðu­neyt­is­ins á mál­inu.

Fyr­ir­hugað er að breyta síð­ari máls­lið ákvæð­is­ins með eft­ir­far­andi hætti og bæta nýjum máls­lið við hann. Annar og þriðji máls­liður 1. mgr. 17. gr. um heil­brigð­is­starfs­menn verði svohljóð­andi:

„Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rök­studd ástæða er til þess að rjúfa þagn­ar­skyldu vegna brýnnar nauð­synjar, þ.e. ef líf og heilsa sjúk­lings er hætta búin vegna ytri aðstæðna eða ef téð komu­á­stæða sjúk­lings er vegna heim­il­is­of­beldis eða ofbeldis í nánu sam­bandi sem geti ógnað lífi og heilsu við­kom­andi. Í þessum til­vikum er heil­brigð­is­starfs­manni heim­ilt að til­kynna lög­reglu um aðstæður og komu­á­stæðu sjúk­lings til þess að lög­regla geti metið aðstæður og gert við­eig­andi ráð­staf­anir til að tryggja nauð­syn­lega vernd sjúk­lings og stuðn­ing.“

Vegna alvar­leika heim­il­is­of­beld­is­mála, stöðu þolenda og óljósra heim­ilda til að til­kynna til lög­reglu „þykir vera ríkt til­efni til að end­ur­skoða lögin og veita heil­brigð­is­starfs­fólki sér­staka heim­ild til að til­kynna lög­reglu um heim­il­is­of­beldi,“ segir þar enn­fremur. Laga­breyt­ing myndi að mati ráðu­neyt­is­ins stuðla að því að lög­reglu yrði í auknum mæli gert kleift að veita aðstoð sína, þar sem ætla má að þolendur slíks ofbeldis veigri sér við að leita réttar síns og þekki rétt­indi sín oft ekki nægi­lega vel. Án laga­breyt­ingar geta lög og reglur, sér­stak­lega um þagn­ar­skyldu, hamlað fram­gangi mála hjá lög­reglu og í ein­hverjum til­fellum komið í veg fyrir að þol­andi fái við­eig­andi aðstoð. Þannig getur lagaum­hverfið við­haldið ofbeld­is­að­stæðum þol­anda í stað þess að stíga inn í aðstæður og veita alla til­tæka aðstoð sem þol­andi á rétt á.

Markmið með breyt­ing­unni er að sögn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins að auka þjón­ustu við þolendur heim­il­is­of­beldis og að auka vernd þolenda ofbeldis. „Aðferðin við að ná því mark­miði er að brúa bilið sem vantar í lög­gjöf­ina þannig að ákvæði um þagn­ar­skyldu og annað hindri ekki fram­vindu mála í þeim til­vikum sem hér er lýst.“

[adspot]

Konur eru lík­legri að vera þolendur heim­il­is­of­beldis og heil­brigð­is­starfs­menn eru gjarnan þeir fyrstu sem fá vit­neskju um ofbeldið. Með orð­inu heim­il­is­of­beldi er í þessu sam­bandi átt við ofbeldi milli náinna eða tengdra aðila s.s. milli núver­andi eða fyrr­ver­andi maka eða sam­búð­ar­að­ila hvort sem aðilar eru skráðir í sam­búð eða ekki, af hálfu niðja eða ann­arra sem búa á heim­ili við­kom­andi eða eru í hans umsjá.

40 prósent þolenda koma ítrekað vegna áverka

Eðli heim­il­is­of­beldis kemur meðal ann­ars fram í stig­mögnun (e. escalation) ofbeld­is­ins. Því eru þolendur heim­il­is­of­beldis útsettir fyrir stig­vax­andi alvar­leika áverka og alvar­legra afleið­inga á and­lega og lík­am­lega heilsu, segir m.a. í fylgi­skjölum við áformunum í sam­ráðs­gátt. Sömu­leiðis sýna rann­sóknir að þessi sjúk­linga­hópur kemur ítrekað á bráða­mót­tökur með áverka eftir ofbeldið. Íslensk rann­sókn frá árinu 2022 sýndi að 40 pró­sent þeirra kvenna sem koma á bráða­mót­tök­una í Fossvogi eftir heim­il­is­of­beldi komu ítrekað vegna lík­am­legra áverka af völdum heim­il­is­of­beldis. Þá koma 4 af hverjum 10 konum sem koma vegna áverka á spít­al­ann, út af áverkum í kjöl­far heim­il­is­of­beldis.

„Nándin sem felst í tengsl­unum milli þol­anda og ger­anda gerir það að verkum að erf­ið­ara er fyrir þol­anda að leita sér aðstoðar t.d. hjá lög­reglu,“ stendur í sam­an­tekt ráðu­neyt­is­ins. „Vegna þeirrar stöðu sem þolendur heim­il­is­of­beldis eru í þá væri skyn­sam­legt að skýra núver­andi heim­ildir heil­brigð­is­starfs­manna til að hafa sam­band við lög­reglu að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum.“

Rann­sóknir hafi sýnt að snemmtæk inn­grip og teng­ing milli kerfa hefur jákvæð áhrif í för með sér, þolendum heim­il­is­of­beldis til hags­bóta. Með heild­stæðri og snemmtækri þjón­ustu á að leit­ast við að koma í veg fyrir stig­mögnun ofbeld­is­ins og ítrek­aðar komur vegna þess og bæta þannig lífs­gæði þolenda og aðstand­enda þeirra. „Sömu­leiðis er leit­ast við að taka af vafa heil­brigð­is­starfs­fólks um heim­ild um að rjúfa þagn­ar­skyldu þegar sjúk­lingur kemur vegna heim­il­is­of­beldis.“

Ráðu­neytið telur að með laga­setn­ing­unni fái þolendur heim­il­is­of­beldis aukna vernd með því að stjórn­völd sinni jákvæðum skyldum sínum og stígi inn í ofbeld­is­mál í auknum mæli. Þannig verði lög­reglu t.d. kleift að hafa afskipti af ger­endum og tryggja vernd þolenda í heim­il­is­of­beld­is­málum.

Í for­máls­orðum samn­ingi Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi á konum og heim­il­is­of­beldi (Istanbúl samn­ing­ur­inn), hafa aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins við­ur­kennt að ofbeldi gegn konum, sem er í eðli sínu kyn­bundið ofbeldi, er eitt helsta félags­lega tækið til að neyða konur til að skipa lægri sess í sam­fé­lag­inu en karlar. Einnig kemur fram að aðild­ar­ríkin hafi gert sér grein fyrir því mikla áhyggju­efni að konur og stúlkur verði oft fyrir alvar­legu ofbeldi. Þá gerðu aðild­ar­ríkin sér grein fyrir því að konur og stúlkur eru í meiri hættu en karlar að verða fyrir kyn­bundnu ofbeldi og að konur verða hlut­falls­lega oftar fyrir heim­il­is­of­beldi en karlar sem geta þó einnig orðið fyrir slíku ofbeldi.

Karlar eru lík­legri en konur til að vera hættu­legri sam­borg­urum sínum. Í skýrslu sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra gaf út í mars á þessu ári kom fram að á árunum 2010-2020 var fjöldi allra mann­dráps­mála 21. Konur voru fórn­ar­lömb í ell­efu þess­ara mála. Gerendur voru karlar í miklum meiri­hluta mál­anna eða 19 af 21.

Þegar litið er til maka­of­beldis þá eru ger­endur í 83 pró­sent til­vika karlar og í jafn háu hlut­falli eru þolendur konur. Algeng­asta verkn­að­ar­að­ferðin var hnífstunga/egg­vopn (38 pró­sent) og kyrk­ing sú næstal­geng­asta (24 pró­sent). Þegar horft er til ofbeldis af hálfu fjöl­skyldu­með­lims skráð hjá lög­reglu á árinu 2021 þá eru ger­endur í 79 pró­sent til­vika karlar og þolendur í 54 pró­sent til­vika konur.

Annan hvern dag

Heim­il­is­of­beldi er stærsta ógn við lýð­heilsu kvenna í heim­inum, segir í sam­an­tekt heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Heim­il­is­of­beldi í garð kvenna er mann­rétt­inda­brot og hefur víð­tækar nei­kvæðar afleið­ingar á líf og líðan þolenda, sem og aðstand­enda þeirra sem oft eru börn að aldri. Algengi heim­il­is­of­beldis í garð kvenna á Íslandi er um 22 pró­sent og annan hvern dag kemur kona með lík­am­lega áverka í kjöl­far heim­il­is­of­beldis á bráða­mót­töku Land­spít­ala.

Heim­il­is­of­beldi er algeng­ast hjá konum sem eru á barn­eign­ar­aldri og rann­sóknir sýna að ofbeldi hefst gjarnan þegar konan verður ófrísk, sem hefur nei­kvæð áhrif á með­göngu, fæð­ingu og fyrstu ár barns­ins. Samkvæmt íslenskum rann­sóknum eru um 20 pró­sent íslenskra mæðra beittar ofbeldi á með­göngu.

[adspot]

Breskar rann­sóknir sýna að 14 pró­sent kvenna sem deyja á með­göngu höfðu áður sagt heil­brigð­is­starfs­manni frá heim­il­is­of­beldi. „Ekkert bendir til að nið­ur­stöður sam­bæri­legrar rann­sóknar hér­lendis yrðu á annan máta,“ segir í gögnum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. „Rann­sóknir sýna að ofbeldi erf­ist og þau börn sem alast upp við ofbeld­is­hegðun for­eldra eru bæði lík­legri til að verða ger­endur og þolendur heim­il­is­of­beldis í fram­tíð­inni.“

Með skýr­ari heim­ildum heil­brigð­is­starfs­fólks til að veita þolendum heim­il­is­of­beldis marg­þætt­ari þjón­ustu með því að tengja lög­reglu í þeirra mál er von­ast til að bæta lýð­heilsu þolenda og aðstand­enda þeirra. „Án laga­breyt­ingar munu lög og reglur, sér­stak­lega um þagn­ar­skyldu, hamla fram­gangi mála hjá lög­reglu og í ein­hverjum til­fellum koma í veg fyrir að þol­andi fái við­eig­andi aðstoð,“ segir í rök­stuðn­ingi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins vegna áfor­manna. „Þannig mun lagaum­hverfið við­halda ofbeld­is­að­stæðum þol­anda í stað þess að stíga inn í aðstæður og veita alla til­tæka aðstoð sem þol­andi á rétt á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár