Segir kerfið vernda ofbeldismenn sem meiða börn

Þing­maður Pírata segir að kerfið standi alfarið með ofbeld­is­mönnum – og að við­horfin innan þess til heim­il­is­of­beldis og þolenda séu brengluð.

Hringt í hana 88 sinnum á fjögurra klukkustunda bili
Hringt í hana 88 sinnum á fjög­urra klukku­stunda bili Arndís Anna greindi frá per­sónu­legri reynslu af ofsóknum í ræðu­stól Alþingis í dag. Mynd: Bára Huld Beck

„Kerfið verndar ofbeld­is­menn sem meiða börn með því að berja móður þeirra, vernd­ara, öryggi, stoð og styttu. Eftir stendur ein­ungis drott­inn sjálfur til þess að koma barn­inu til bjargar. En hann er aug­ljós­lega ekki til.“

Þetta sagði Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. 

Hóf hún mál sitt á því að rifja upp per­sónu­lega reynslu: „Já, er hann óþol­in­móður? spurði lög­reglu­kona í Bjark­ar­hlíð þegar ég greindi henni frá því að mað­ur­inn hefði hringt í mig 88 sinnum á fjög­urra klukku­stunda bili. Spurning mín laut að því hvort ég gæti kært ofsókn­irnar til lög­regl­unnar hér á landi þrátt fyrir að ger­and­inn væri staddur erlendis. Er hann óþol­in­móður?“

Brenglað viðhorf í kerfinu til heimilisofbeldis og þolenda þess

Arndís Anna benti á að árið 2016 hefði heim­il­is­of­beldi verið gert refsi­vert hér á landi. „Það var síðan ekki fyrr en 2021 sem svo­kallað umsát­ursein­elti var gert refsi­vert sam­kvæmt íslenskum lögum. Fram að því giltu ákvæði um nálg­un­ar­bann og brott­vísun af heim­ili sem sjaldan var beitt. Hvers vegna? Ég held að við­brögð lög­reglu­kon­unnar, sem ég lýsti hér rétt áðan svari þeirri spurn­ingu með hreinum ágætum; vegna brenglaðra við­horfa í kerf­inu til heim­il­is­of­beldis og þolenda þess,“ sagði hún. 

„Í löngu og slá­andi við­tali í Heim­ild­inni fyrir örfáum dögum birt­ist við­tal við móður sem reynt hefur að koma sjálfri sér og barni sínu undan ofbeldi og ofsóknum föður barns­ins í fimm ár. Í fimm löng ár hefur dag­legt líf þeirra mæðgin­anna ein­kennst af miklu og ítrek­uðu áreiti, hót­unum og ann­ars konar ofbeldi af hálfu manns­ins. Maðurinn hefur hlotið dóm fyrir ofbeldið, sem ger­ist nán­ast aldrei. Hann hefur ítrekað verið lát­inn sæta nálg­un­ar­banni, sem ger­ist nán­ast aldrei. 

Þrátt fyrir allt þetta er barnið þvingað. Það er borið skelf­ingu lostið í fang ofbeld­is­manns­ins, öskur­grát­andi á hjálp, á stuðn­ing, á vernd. Barnið hrópar á móður sína sem með lögum er í senn skylt og bannað að vernda það gegn ofbeld­inu. Barnið hrópar á kerfið sem stendur alfarið með ofbeld­is­mann­inum. Kerfið verndar ofbeld­is­menn sem meiða börn með því að berja móður þeirra, vernd­ara, öryggi, stoð og styttu. Eftir stendur ein­ungis drott­inn sjálfur til þess að koma barn­inu til bjargar. En hann er aug­ljós­lega ekki til,“ sagði hún að lokum og spurði: „Forseti. Hvað er að?“

Hefur barist fyrir því af hörku að vernda son sinn

Í við­tali Heim­ild­ar­innar sem Arndís Anna vísar til kemur fram að um margra ára skeið hafi Melkorka Þór­halls­dóttir búið við hót­anir og ógn­anir, hún verið elt, setið hefur verið um heim­ili hennar og ruðst þangað inn. Hún hefur þurft að loka síma sínum vegna hund­raða hring­inga og skila­boða á öllum tímum sól­ar­hrings, skila­boða sem ein­kenn­ast af ill­mælgi, dóna­skap, smánun og van­virð­ingu, auk hreinna hót­ana. Hún lýsir stöðu sinni svo: „Í á fimmta ár hef ég aldrei verið full­kom­lega örugg, ég er stans­laust kvíðin, hrædd og svefn­vana.“

Á sama tíma hefur Melkorka ótt­ast um, og barist fyrir, vel­ferð ungs sonar síns. Maðurinn sem ber ábyrgð á því umsátri sem ein­kennt hefur líf Melkorku síð­ustu ár er barns­faðir hennar og má rekja þessa hegðun hans til þess er Melkorka sleit sam­bandi þeirra haustið 2018. Raunar má fara lengra aftur í tím­ann segir hún, því stjórnun og and­legt ofbeldi af hálfu manns­ins hófst enn fyrr. Af þessum sökum hefur Melkorka barist fyrir því af hörku að vernda son sinn en hún telur að öryggi drengs­ins sé ekki tryggt í umgengni við föður.

Hægt er að lesa við­tal Heim­ild­ar­innar í heild sinni hér. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár