Þarf að deila umgengni með manni sem fékk nálgunarbann

Í rúm fjögur ár hefur Melkorka Þór­halls­dóttir þurft að þola umsát­ursein­elti og ógn­anir barns­föður síns. Dómur yfir mann­inum og nálg­un­ar­bann í þrí­gang duga lítt til. Forsjá og umgengni mannsinns við son þeirra hefur verið til umfjöll­unar hjá yfir­völdum frá árinu 2018 en lítið til­lit tekið til ofbeld­is­ins, né ein­dreg­inni and­stöðu drengs­ins gegn því að hitta pabba sinn.

Þarf að deila umgengni með manni sem fékk nálgunarbann
Umsát­urs­á­stand í áraraðir Melkorka Þór­halls­dóttir hefur vart getað um frjálst höfuð strokið í á fimmta ár vegna áreitni, ógn­anna og ofbeldis barns­föð­urs síns. Mynd: Davíð Þór

Um margra ára skeið hefur Melkorka Þór­halls­dóttir búið við hót­anir og ógn­anir, hún verið elt, setið hefur verið um heim­ili hennar og ruðst þangað inn. Hún hefur þurft að loka síma sínum vegna hund­raða hring­inga og skila­boða á öllum tímum sól­ar­hrings, skila­boða sem ein­kenn­ast af ill­mælgi, dóna­skap, smánun og van­virð­ingu, auk hreinna hót­ana. Hún lýsir stöðu sinni svo: „Í á fimmta ár hef ég aldrei verið full­kom­lega örugg, ég er stans­laust kvíðin, hrædd og svefn­vana.“

Á sama tíma hefur Melkorka ótt­ast um, og barist fyrir, vel­ferð ungs sonar síns. Maðurinn sem ber ábyrgð á því umsátri sem ein­kennt hefur líf Melkorku síð­ustu ár er barns­faðir hennar og má rekja þessa hegðun hans til þess er Melkorka sleit sam­bandi þeirra haustið 2018. Raunar má fara lengra aftur í tím­ann segir hún, því stjórnun og and­legt ofbeldi af hálfu manns­ins hófst enn fyrr. Af þessum sökum hefur Melkorka barist fyrir því af …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Hvað amar að þessum “dómaradusilmennum”. Konan mátt þola ofbeldi árum saman og ofbeldisræflinum dæmd umgengni við barn sem hafnar honum. Hvers á barnið að gjalda?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár