„Förum inn í verðlækkunarsumar,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í morgun, þegar hún kynnti þrjár aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu.
Stærsta aðgerðin er að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11% frá 1. maí næstkomandi.
„Markmið aðgerðanna er að fletja kúfinn vegna hækkananna,“ sagði Kristrún. „Með þessu vilja stjórnvöld setja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir fyrirtæki til að stemma stigum við verðhækkunum,“ sagði Kristrún.
Verðbólgan stendur nú í 5,4% og er jafnhá og hún var í september 2024. Hluti af verðhækkunum á eldsneyti hafa ekki náð inn í verðlagsmælingar og myndu að óbreyttu valda hækkun verðtryggðra lána, sem tveir þriðju lántakenda á húsnæðismarkaði eru með.
„Við höfum tekið eftir þeirri umræðu að það sé óhjákvæmilegt að hér verði mikil verðbólga á næstu mánuðum. Þá skapast umhverfi fyrir fólk, fyrirtæki, að hækka verð. Við ætlum að rjúfa þennan takt, fara í annan takt, ef svo má segja,“ sagði Kristrún. „ Verðbólguvæntingar skipta máli. Stundum þarf að detta í annan takt. Við ætlum að verða sá hvati, sem hefur þessa verðlækkun, fletur út kúfinn,“ sagði hún.
Þá verða söluaðilar skyldaðir til að skila verðlækkun að fullu til neytenda með lagafrumvarpi í næstu viku um vöktun á verðlagningu af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Gert er ráð fyrir að verð á eldsneytislítra lækki um 30 krónur, að sögn Ingu Sæland menntamálaráðherra, en Kristrún sagði lækkunina vera 10 prósent, sem næmi þá 21 til 29 krónum á lítrann.
Í öðru lagi mun ríkisstjórnin styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir vegna eftirlits með dagvöru og þjónustu.
Í þriðja lagi verði Ísland gert óháðara eldsneyti. „Við erum í mjög sterkri stöðu til að halda áfram rafvæðingu,“ sagði Kristrún.
Þannig verði 500 milljónir króna lagðar í fjölgun hleðslustöðva um land allt, við fjölbýlishús, gististaði og víðar. „Það eiga allir að geta hlaðið bílinn sinn.“ Kristrún sagði að nú ætti að „loka hleðslugatinu hringinn í kringum landið“ og draga úr „hleðslukvíða“.
Þetta eru hins vegar aðeins 200 milljóna króna viðbótarfjárframlög, þar sem áður voru 300 milljónir króna í orkusjóði ætlaðar í verkefnið.
Áður hefur ríkisstjórnin hins vegar lækkað verulega styrki til kaupa á rafbílum.
Kristrún sagði að lækkun matarskatts eða virðisaukaskatts almennt hefði verið rædd, en ekki ákveðin.
Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og renna út 31. ágúst.
Í síðasta mánuði tilkynntu meðal annars norsk og sænsk stjórnvöld um lækkun á sköttum á eldsneyti.
















































Athugasemdir