ÁTVR sýnist við fyrstu sýn að dómur í máli Smáríkisins sé samhljóða dómum sem hafa fallið í sambærilegum málum í Finnlandi og Svíþjóð. Smáríkið hefur tilkynnt að dómnum verði áfrýjað til Landsréttar, en forsvarsmaður fyrirtækisins, Vilhjálmur Forberg Ólafsson, var dæmdur fyrir brot á áfengislögum og til greiðslu hundrað þúsund króna í sekt fyrir að selja hvítvínsbelju í gegnum netsölu.
Héraðsdómur Reykjaness hefur ekki enn birt dóminn á vef sínum þegar þetta er ritað, en í ákæru á sínum tíma kom fram að ákæruvaldið liti svo á að áfengið yrði að vera erlendis þegar það væri pantað og það væri því óheimilt að flytja það til landsins, selja og afhenda eftir að það er komið til landsins.
Lagalegt tómarúm
Í grunninn snýst málið um grundvallarreglur Evrópusambandsins, það er, frjálst flæði vöru og þjónustu milli ríkja og svo áfengislaga á Íslandi þar sem ÁTVR hefur einkaréttinn á áfengissölu. Íslendingar eru í EES …


















































Athugasemdir