Heuermann játar á sig morðin

Rex Heu­er­mann hef­ur ját­að að hafa myrt og sund­urlim­að sjö kon­ur og dreift lík­ams­leif­um þeirra um strand­svæði í Banda­ríkj­un­um. Hann var kvænt­ur ís­lenskri konu í 27 ár.

Heuermann játar á sig morðin
Játar sök Morðin á Gilgo-ströndinni voru með þekktustu óleystu morðmálunum á austurströnd Bandaríkjanna. Mynd: Fógetinn í Suffolk-sýslu

Rex Heuermann, sem sakaður er um að hafa myrt og sundurlimað sjö konur og dreift líkamsleifum þeirra um auð strandsvæði í Bandaríkjunum játaði sig sekan á miðvikudag, að því er staðarmiðlar greina frá. Hann var kvæntur íslenskri konu, Ásu Guð­björgu Ell­erup, í 27 ár.

Heuermann, 62 ára, játaði sig sekan fyrir dómstóli í Suffolk-sýslu um mannrán, pyntingar og morð á sjö konum víðsvegar um Long Island á árunum 1993 til 2010 og á nú yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef dómarinn samþykkir játningu hans, að því er PIX11 greindi frá.

Arkitektinn Heuermann, sem var fyrst handtekinn í júlí 2023 fyrir utan skrifstofu sína á Manhattan, hafði upphaflega neitað sök, sem gaf til kynna að löng réttarhöld biðu fjölskyldna fórnarlamba hans.

Líkamsleifar ellefu morðfórnarlamba – níu kvenna, eins manns og ungrar stúlku – fundust árin 2010 og 2011 í kjarri meðfram hraðbrautinni nálægt Gilgo Beach, strandlengju við suðurströnd Long Island.

Gilgo Beach-málið hafði vafist fyrir rannsakendum í mörg ár, en lík fórnarlambanna, flest þeirra kynlífsverkafólk, fundust á sama afskekkta strandkaflanum án þess að nokkur grunaður væri nafngreindur.

Árið 2022 beindu rannsakendur hins vegar sjónum sínum að Heuermann eftir að í ljós kom að hann var skráður eigandi ökutækis sem eitt fórnarlambanna hafði sést í.

Síðan þá hefur málið gegn Heuermann – sem var kvæntur tveggja barna faðir þegar morðin voru framin – byggst á DNA-sönnunargögnum úr pizzukassa sem hent hafði verið og farsímagögnum sem tengja hann við fórnarlömbin.

Sum þessara sönnunargagna fundust á heimili fjölskyldu hans í Massapequa Park.

Heuermann framkvæmdi einnig hundruð leita á netinu um rannsóknina á morðunum og spurði spurninga á borð við: „Af hverju hefur raðmorðinginn á Long Island ekki náðst?“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Verið sjálfsörugg varðandi sjávarútveginn”
6
ViðtalHorft til Evrópu

„Ver­ið sjálfs­ör­ugg varð­andi sjáv­ar­út­veg­inn”

Dr. Funda Tek­in er sér­fræð­ing­ur í stækk­un Evr­ópu­sam­bands­ins. Hún seg­ir að vegna land­ræði­legr­ar legu Ís­lands þá gæti Evr­ópu­sam­band­ið séð hag í að ná samn­ing­um núna. Ís­lend­ing­ar eigi að vera sjálfs­ör­ugg­ir og ekki síst hvað varð­ar sjáv­ar­út­veg­inn. Tækni­lega séu að­ild­ar­við­ræð­ur þó ekki samn­inga­við­ræð­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
2
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
4
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár