„Ég segi bara loksins, loksins hefur verið brugðist við hinu augljósa broti á áfengislöggjöfinni,“ segir Árni Guðmundsson, lektor við Háskóla Íslands í tómstunda- og félagsmálafræði og formaður foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. Hann gekk svo langt að kæra sig sjálfan fyrir ólögleg áfengiskaup fyrir nokkrum árum síðan. Það gerði hann til þess að mótmæla seinagangi lögreglunnar í rannsókn á smásölu áfengis á netinu. Nú liggur loks fyrir dómur, þó ekki tengdur máli Árna, heldur vegna sölu Smáríksins á hvítvínsbelju. Var Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, sektaður um hundrað þúsund krónur fyrir söluna en dómurinn hefur ekki enn verið birtur.
Pólitískt bitbein
Málið hefur verið sérkennilegt pólitískt bitbein. ÁTVR lét reyna á netsölu áfengis en því máli var vísað frá héraðsdómi árið 2022. Málinu var ekki áfrýjað og mátti rekja þá ákvörðun til þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar. Síðan þá hefur smásala áfengis verið í lagalegu tómi ef svo má að orði komast, en Forvarnarsamtökin voru þó ósammála því og kærðu smásöluna til lögreglu á þeim forsendum að áfengislöggjöfin væri fullkomlega skýr hvað smásölu varðar. Fyrrverandi fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, var síðar gagnrýndur harðlega fyrir að hvetja lögreglu til þess að fullrannsaka þessi mál eftir umtalsverðan drátt á rannsókninni og var hann sakaður um óeðlileg afskipti af framkvæmdarvaldinu í kjölfarið. Það var eftir að ríkissaksóknari krafðist þess að fá svör vegna seinagangs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í rannsókn á netsölu á áfengi.
Hugsi yfir Hagkaup
Í umfjöllun Vísis, sem greindi fyrst frá niðurstöðu héraðsdóms, kemur fram að félagið sem seldi að endingu áfengið hér á landi hafi keypt það af íslenskum heildsala en ekki beint af erlendum aðila, eins og heimilt er samkvæmt reglum EES samningsins.
Var því niðurstaðan sú að fyrirtækið gerðist brotlegt við áfengislögin með því að brjóta gegn einkaleyfi ÁTVR.
Árni er hugsi yfir málinu og bendir á að fleiri selji áfengi í smásölu og nefnir þar Hagkaup sérstaklega.
„Það er engin lagaleg óvissa eftir, að okkar mati, og því hljóta lífeyrissjóðirnir að hugsa sinn gang varðandi áfengissölu í verslunum sem þeir eiga að stórum hluta,“ segir Árni sem er fullviss um að málið sé borðleggjandi. „Það væri í okkar huga eiginlega bara kjánaskapur að vera að áfrýja þessu, enda skýr niðurstaða í málinu,“ segir Árni sem lítur á niðurstöðuna sem fullnaðarsigur.



















































Athugasemdir