Hæddist að hjónabandi Macrons og boðaði vanefndir í NATO

Trump gaf til kynna að NATO myndi ekki virka ef kæmi til stór­styrj­ald­ar. „NATO verð­ur ekki til stað­ar ef við lend­um í því stóra,“ sagði hann.

Hæddist að hjónabandi Macrons og boðaði vanefndir í NATO
Macron og Trump Takast hér í hendur á friðarráðstefnu um Gaza í október í fyrra, en síðan þá hefur ófriður brotist út eftir ákvörðun Ísraela og Bandaríkjamanna. Mynd: AFP

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði í dag að háðsglósur Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hjónaband sitt verðskulduðu ekki svar og kallaði þær „hvorki smekklegar né við hæfi“.

En eftir margra daga spennu vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og vegna NATO, lét greinilega pirraður Macron vaða og sagði „það er of mikið talað“ og „þetta er engin sýning“.

Hæddist að hjónabandinu

Í gær gerði Trump grín að Frakklandsforseta og eiginkonu hans í einkahádegisverði þar sem hann gagnrýndi bandamenn í NATO fyrir að taka ekki þátt í stríðinu gegn Íran. Bandaríkjaforseti hermdi eftir frönskum hreim og sagði að eiginkona Macrons „færi afar illa með hann“ og að Macron væri enn að „jafna sig eftir hægri krókinn“.

Í heimsókn til Seúl sagði Macron, sem var í fylgd eiginkonu sinnar Brigitte, að ummæli Trumps væru „hvorki smekkleg né við hæfi“.

„Þannig að ég ætla ekki að svara þeim – þau verðskulda ekki svar,“ sagði Macron við fréttamenn.

Áherslan ætti þess í stað að vera á „vinnu að því að draga úr spennu“ í Mið-Austurlöndum og vopnahlé, sagði Macron.

„Það er of mikið talað og það er út um allt,“ sagði Frakklandsforseti og vísaði þar greinilega til fjölmargra stefnubreytinga Trumps.

„Við þurfum öll á stöðugleika, ró og friði að halda – þetta er engin sýning!“ sagði Macron.

Brigitte og MelaniaAðeins er vika síðan að franska forsetafrúin Brigitte Macron heimsótti Melaniu Trump í Hvíta húsið, þar sem bandaríska forsetafrúin kynnti hugmyndir um að nýta vélmenni í kennslu.

Fólk deyr og forsetinn hlær

Nýjasta árás Trumps á Macron reitti franska stjórnmálamenn til reiði, jafnvel pólitíska andstæðinga Frakklandsforseta.

„Í hreinskilni sagt er þetta ekki við hæfi,“ sagði Yaël Braun-Pivet, forseti neðri deildar franska þingsins.

„Við erum núna að ræða framtíð heimsins. Núna í Íran hefur þetta afleiðingar fyrir líf milljóna manna, fólk er að deyja á vígvellinum og við erum með forseta sem er að hlæja, sem er að gera grín að öðrum,“ sagði hún við franceinfo.

Jafnvel Manuel Bompard, oddviti vinstriflokksins France Unbowed, sem er oft gagnrýninn á forsetann, hljóp til varnar Macron.

„Þú veist hversu mikill ágreiningur minn er við forsetann, en að Donald Trump skuli tala við hann svona og tala um eiginkonu hans á þennan hátt – mér finnst það algjörlega óásættanlegt,“ sagði Bompard við sjónvarpsstöðina BFMTV.

Íhaldssama franska dagblaðið Le Figaro sagði: „Enn eitt umdeilt útspil frá Donald Trump.“

„Enn að jafna sig“

Trump gerði grín að Macron og Frökkum í myndbandi sem birtist stuttlega á YouTube-rás Hvíta hússins áður en lokað var á myndbandið.

„Við þurftum ekki á þeim að halda, en ég spurði samt,“ sagði Trump.

„Ég hringi í Frakkland, í Macron – en eiginkona hans fer afar illa með hann. Enn að jafna sig eftir hægri krókinn,“ sagði Trump.

Bandaríkjaforseti vísaði til fréttamyndbands frá maí 2025 sem virtist sýna Brigitte Macron ýta við andliti Frakklandsforseta í ferð til Víetnam, sem Macron hafnaði síðar sem hluta af falsupplýsingaherferð.

Þá hafnaði Macron öllum „heimiliserjum“ hans og  eiginkonunnar og sagði að þau hefðu verið „að grínast eins og við gerum oft“.

„Og ég sagði: „Emmanuel, við myndum gjarnan vilja fá hjálp við Persaflóa þótt við séum að setja met í að útrýma vondu fólki og skjóta niður flugskeyti. Við myndum gjarnan vilja fá hjálp. Gætirðu vinsamlegast sent skip strax?‘“ hélt Trump áfram.

Síðan hermdi hann eftir frönskum hreim til að gefa meint svar Macrons: „‚Nei, nei, nei, við getum ekki gert það, Donald. Við getum gert það eftir að stríðið er unnið,‘“ sagði hann.

„Ég sagði: ‚Nei, nei, ég þarf ekki á því að halda eftir að stríðið er unnið, Emmanuel,‘“ sagði Trump.

„NATO verður ekki til staðar ef við lendum í því stóra“
Donald Trump

„Þannig að ég lærði um NATO – NATO verður ekki til staðar ef við lendum í því stóra, þú veist hvað ég meina með því stóra,“ sagði Trump, án þess að útskýra það nánar.

Hann kallaði NATO einnig „pappírstígrisdýr“, nýjasta útspil Trumps og helstu embættismanna hans gegn Atlantshafsbandalaginu síðan hann sneri aftur í Hvíta húsið á síðasta ári.

Á þriðjudag sagði Marco Rubio utanríkisráðherra að Bandaríkin „verði að endurskoða“ samband sitt við NATO þegar stríðinu gegn Íran er lokið.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Veröld valdsins eftir fall hugsjónanna
Greining

Ver­öld valds­ins eft­ir fall hug­sjón­anna

Benja­mín Net­anja­hú seg­ir að Jesús Krist­ur hafi ekki haft neitt fram yf­ir Geng­is Kh­an. „Það er ekki nóg að gera sið­ferð­is­lega rétt,“ seg­ir hann og boð­ar stríð við „villi­menn“. Geir H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands, lýs­ir því að hug­sjón­irn­ar séu falln­ar og að Ís­lend­ing­ar þurfi að „liggja lágt“ gagn­vart Banda­ríkj­un­um vegna valds þeirra.

Mest lesið

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
2
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
3
Viðskipti

Ís­lensku fyr­ir­tæki líkt við her­tæknifyr­ir­tæk­ið Pal­ant­ir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár