Litlar vonir um vor Röð lægða er vænt­an­leg yfir Ísland allt fram yfir páska. Mynd: Golli

Lægðir í röðum dynja á Íslandi fram yfir páska

„Stóri boli“ sendir óveður til Íslands. „Gult ástand“ í gildi með hléum. Fólk mun þurfa að skipu­leggja ferða­lög á milli lægða, miðað við spá.

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur, sem heldur úti veð­ur­vefnum Bliku.is, varar við röð lægða sem ber­ast til Íslands undan veð­ur­fyr­ir­bær­inu „Stóra bola“ sem hímir við Grænland og Norður -Kanada.

Þannig kemur laug­ar­dagslægð á morgun, minni þriðju­dagslægð, skeinu­hætt Skír­dagslægð og enn önnur á föstu­dag­inn langa. Til­komu­mesta lægðin sé páska­dagslægðin áætl­aða.

Hann segir í Facebook-færslu allt geta breyst, en „líkur á við­snún­ingi í átt til vor­legra veð­urs fyrir páska eru hins vegar litlar, eig­in­lega afar litlar.“

Gul við­vörun er fyrir alla lands­hluta með hléum í dag og á morgun, aðra en Norð­aust­ur­land.

Það verður hvöss suð­aust­an­átt og snjó­koma á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með lélegu skyggni og erf­iðum akst­urs­skil­yrðum frá klukkan 18 á morgun til 22, sam­kvæmt við­vörun Veð­ur­stof­unnar, sem kallar þetta „gult ástand“.

Annars staðar skipt­ast á austan hríðir og norð­vestan- eða norð­an­stormur eða -rok. Lítið skánar það næstu tíu daga.

„Stóri boli“Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur bendir á komu djúprar lægðar á morgun. „Með­al­kortið er spá næstu 10 daga eða til 5. apríl (páska­dagur). Hæð 500 hPa flat­ar­ins í um 5,5 km og frá­vikin frá með­al­tali apr­íl­mán­aðar. Litirnir verða heldur dauf­ari ef miðað væri við með­al­tal mars­mán­aðar,“ segir Einar Svein­björns­son.
App­el­sínugult ástandFerða­menn í mynda­töku í mið­borg Reykja­víkur í gær.

„Það er engan vor­brag að sjá á kalda hvirfl­inum í háloft­unum sem kenndur er við „Stóra bola“. Hann er líka á versta stað og enn er óþægi­legur „leki“ frá honum um S-Grænland og í átt­ina til okkar,“ segir Einar og vísar til veð­ur­fyr­ir­bær­is­ins Stóra bola, sem er kaldur hvirf­ill stað­settur fyrir vestan Grænland og í Norður-Kanada.

Þannig segir Einar að það verði „ströng suð­vestan-vindröst“ suður og suð­vestur í höfum næstu 10 daga, þar sem kalda loftið frá Kanada mætir hlýju og röku  Atl­ant­haf­s­loft­inu. „Kjörað­staður lægð­anna og Ísland áfram skot­skífa þeirra,“ segir Einar. 

Einar segir að þeir sem ætli að ferð­ast um pásk­ana muni þurfa að „áætla ferða­daga þegar dúrar aðeins á milli lægð­anna“.

„Sam­göngur munu vafa­lítið raskast ítrekað áfram og milli­landa­flugið þarf trú­lega stundum einnig að sæta lagi,“ segir Einar, veð­ur­fræð­ingur á Bliku.is.

Loksins vetr­ar­veðurEftir mikla snjó­komu í Reykja­vík í októ­ber tók við milt veður og kyrrt á víxl. Á þessum myndum úr borg­inni í gær má sjá síð­bú­inn vet­ur­inn heilsa gestum og gang­andi.
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár