Evrópusambandið samþykkir ofveiði á makríl

Sam­komu­lag Íslend­inga og nágranna­þjóða utan Evr­ópu­sam­bands­ins knúði ESB til þess að fylgja í kjöl­farið og veiða meiri mak­ríl en vís­inda­menn mæla með.

Evrópusambandið samþykkir ofveiði á makríl
Makríll Íslendn­ingar hófu veiðar á upp­sjáv­ar­teg­und­inni mak­ríl af krafti árið 2007 eftir að teg­undin hóf að ganga í íslenska lög­sögu við breyt­ingu á hita­stigi sjávar.

Evr­ópu­sam­bandið jók í dag kvóta fyrir mak­ríl sem veiða má í Norður-Atl­ants­hafi og vék þar með frá vís­inda­legri ráð­gjöf, til að jafna kvóta sem Bretland, Noregur, Íslend­ingar og aðrar þjóðir á svæð­inu hafa sett.

Vís­inda­menn segja að ofveiði sé til­vistarógn við mak­ríl­stofn­inn í Norð­austur-Atl­ants­hafi, sem hefur minnkað niður á hættu­svæði þar sem æxlun hans er ekki lengur tryggð.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands til­kynnti 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn um „sögu­legt sam­komu­lag um skipt­ingu mak­ríl­stofns­ins“, en þar var hlut­deild Íslands í fyrsta sinn við­ur­kennt form­lega af aðilum sam­komu­lags­ins: Bret­landi, Noregi og Færeyjum. Utan sam­komu­lags­ins stóðu Evr­ópu­sam­bandið og Grænland.

„Ísland axlar hér ábyrgð, með nágrönnum okkar, á sjálf­bærni veið­anna,“ sagði þá Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. Sam­komu­lagið var þó umdeilt.

Kristinn Hjálm­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Icelandic Susta­ina­ble Fis­heries (ISF), sagði í sam­tali við mbl.is í fyrra að sam­komu­lag Íslend­inga við nágranna­þjóð­irnar, utan ESB, væri ósjálf­bært. „Ég get þó ekki séð að þessi samn­ingur sé sjálf­bær lausn, því heild­ar­afl­inn er enn yfir vís­inda­legri ráð­gjöf.“

Lönd Evr­ópu­sam­bands­ins fóru hins vegar að ráðum vís­inda­manna í des­em­ber og sam­þykktu 70 pró­senta sam­drátt í mak­ríl­veiðum – í sam­ræmi við til­mæli Alþjóða­haf­rann­sókna­ráðs­ins (ICES), sem er vís­inda­stofnun.

En þau sneru við blað­inu í dag eftir að við­ræður við nágranna­ríkin um að taka upp svip­aða nálgun mistók­ust.

Land­bún­að­ar­ráð­herrar 27 þjóða ESB sem fund­uðu í Brussel ákváðu nýtt, lægra sam­drátt­ar­mark­mið upp á 48 pró­sent miðað við 2025, stað­festu heim­ild­ar­menn úr stjórn­mála­líf­inu við frétta­stof­una AFP.

Það færir ESB í takt við kvót­ann sem settur var í sam­komu­lagi sem Bretland, Noregur, Ísland og Færeyjar und­ir­rit­uðu.

Full­trúar franskra sjó­manna höfðu kvartað yfir því að samn­ing­ur­inn leyfði þessum fjórum þjóðum að ofveiða við­kvæman stofn og samt sem áður flytja afurðir sínar til ESB, sem grefur undan sann­gjarnri sam­keppni.

Lífmassi hrygn­ing­ar­makríls hefur hrunið niður úr tæpum 13 millj­ónum tonna árið 2014 í innan við 3 millj­ónir tonna árið 2025.

Fyrr í þessum mán­uði hafði ESB kvartað yfir skorti á fram­þróun í við­ræðum við strand­ríkin.

„ESB hefur verið eini aðil­inn sem hefur stöðugt vakið máls á nauð­syn þess að virða vís­inda­legar ráð­legg­ingar frá ICES og tak­marka ofveiði Rússa,“ sagði fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hluti af sam­komu­lagi Íslend­inga við þjóð­irnar utan ESB í des­em­ber kvað á um að afla­mark skuli sett hærra árið 2026 en ráð­gjöf Alþjóða­haf­rann­sókna­ráðs­ins mælti með en sam­kvæmt yfir­lýs­ingu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var stefnt að því að árið 2027 yrði veiðum stjórnað sam­kvæmt nýrri afla­reglu.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Óvönduð fyrirsögn. Sé fréttin lesin kemur í ljós, að allar þjóðirnar sem eru að ofveiða makrílinn, Íslendingar þar með taldir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár