Hagvöxtur leiðréttur fyrir íbúafjölgun var enginn á Íslandi í fyrra. Síðustu ár hefur hagvöxtur á mann verið minni á Íslandi en í Evrópusambandinu og oft enginn.
Ástæðan er að þjóðarframleiðsla hefur lítið aukist á sama tíma og mikil mannfjölgun hefur verið á Íslandi. Í fyrra fjölgaði íbúum um 1,3% á landinu og var vöxtur landsframleiðlunnar sömuleiðis 1,3%.
Landsframleiðsla á mann hefur minnkað
Í minnisblaði fjármálaráðherra til þjóðhagsráðs í síðustu viku kom fram að landsframleiðsla á mann hefði verið lægri árið 2024 en níu árum áður, árið 2016. Þar kemur fram áfellisdómur yfir íslensku hagkerfi.
„Af hagtölum að dæma virðist ekki sem hagkerfið sé í niðursveiflu heldur eru drifkraftar tímabundins hagvaxtar í rénun og við blasir hagkerfi sem hefur lítið sem ekkert vaxið, leiðrétt fyrir fólksfjölgun, í hartnær áratug. Útflutningur á hvern íbúa hefur beinlínis dregist saman, og það allnokkuð,“ segir í minnisblaðinu.














































Athugasemdir