Bjargað frá aftöku á síðustu stundu

Banda­ríkin eru eina vest­ræna landið sem stundar dauða­refs­ingar. Þar hefur 75 ára gömlum manni nú verið forðað frá aftöku fyrir morð sem hann framdi ekki.

Bjargað frá aftöku á síðustu stundu
Charles „Sonny“ Burton Tók ekki í gikk­inn og var ekki við­staddur morðið sem átti að taka hann af lífi fyrir.

Rík­is­stjóri banda­ríska rík­is­ins Alabama hefur mildað dauða­dóm 75 ára gam­als manns tveimur dögum fyrir áætl­aða aftöku hans og benti á að hann hefði ekki tekið í gikk­inn í skotárásinni sem hann var dæmdur fyrir.

Kay Ivey, rík­is­stjóri Repúblikana­flokks­ins, sagði í gær að það væri „rang­látt“ að taka Charles „Sonny“ Burton af lífi, en hann hefur setið á dauða­deild í meira en þrjá ára­tugi, þar sem hann var fyrir utan bygg­ing­una þegar vit­orðs­maður hans skaut mann til bana í vopn­uðu ráni.

Burton var einn af sex mönnum sem tóku þátt í rán­inu í verslun í borg­inni Talla­dega árið 1991 þar sem við­skipta­vinur, Doug Battle, var drep­inn.

Rannsókn leiddi í ljós að Burton tók ekki í gikk­inn sem hleypti af bana­skot­inu, en hann var dæmdur fyrir morð sem vit­orðs­maður og dæmdur til dauða árið 1992.

Byssu­mað­ur­inn Derrick DeBruce var einnig dæmdur til dauða, en dómur hans var mild­aður í lífs­tíð­ar­fang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn. Hann lést síðar í fang­elsi.

Ivey mild­aði dauða­dóm Burtons í lífs­tíð­ar­fang­elsi án mögu­leika á reynslu­lausn, aðeins tveimur dögum fyrir áætl­aða aftöku hans með köfn­un­ar­efn­is­gasi á fimmtu­dag.

„Charles Burton skaut ekki fórn­ar­lambið, skip­aði ekki byssu­mann­inum að skjóta fórn­ar­lambið og var þegar far­inn úr versl­un­inni þegar skotárásin átti sér stað,“ sagði Ivey í yfir­lýs­ingu.

„Ég get ekki með góðri sam­visku haldið áfram með aftöku herra Burtons við svo ólíkar aðstæður. Ég tel að það væri rang­látt að einn þátt­tak­andi í þessum glæp yrði tek­inn af lífi á meðan þátt­tak­and­inn sem tók í gikk­inn var það ekki.“

Þetta er í annað sinn sem Ivey náðar fanga á dauða­deild síðan hún tók við emb­ætti rík­is­stjóra árið 2017.

Á þeim tíma hefur hún haft yfir­um­sjón með 25 aftökum.

Fimm fangar á dauða­deild í Banda­ríkj­unum hafa verið teknir af lífi það sem af er ári, sam­kvæmt upp­lýs­inga­mið­stöð um dauða­refs­ingar (DPIC).

Banda­ríkin eru með eitt hæsta hlut­fall fangsels­aðra ein­stak­linga af íbúa­fjölda, eða rúm­lega 0,5% allra. Þar eru nú tæpar tvær millj­ónir manna í fang­elsi og til við­bótar um 3,7 millj­ónir á skil­orði eða reynslu­lausn. 

Banda­ríkin eru eina landið á Vest­ur­löndum sem við­heldur dauða­refs­ingum. Þar voru 25 líf­látnir í fyrra. Meðal ann­arra ríkja sem tóku flesta fanga af lífi eru Kína, Sádí-Arabía, Afganistan, Norður-Kórea, Írak og Íran. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Dauðarefsingum ætti aldrei að beita, ekki einusinni á morðingja einsog Trump og það hyski.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár