Grunaður um sprengjuárás í Ósló

Norska lög­regl­an leit­ar manns sem grun­að­ur er um að hafa kom­ið fyr­ir sprengju við banda­ríska sendi­ráð­ið í Ósló um helg­ina.

Grunaður um sprengjuárás í Ósló

Norska lögreglan birti í dag tvær ljósmyndir af manni sem grunaður er um að hafa komið fyrir sprengju við bandaríska sendiráðið í Ósló um helgina. Enginn slasaðist í sprengingunni og skemmdir voru minniháttar.

Myndirnar eru úr eftirlitsmyndavélum og sýna mann í dökkum fatnaði með hettu yfir höfði og bakpoka á bakinu. Andlit hans sést ekki á myndunum.

Að sögn lögreglu er talið að maðurinn hafi komið fyrir heimatilbúnum sprengjubúnaði við inngang sendiráðsins.

„Ekki hafa verið borin kennsl á viðkomandi og við höfum ekki neinn tiltekinn grunaðan. Enginn hefur verið handtekinn og unnið er af fullum krafti að því að bera kennsl á gerandann,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.

Sprengingin varð um klukkan eitt aðfaranótt sunnudags við inngang að ræðisskrifstofu sendiráðsins.

Lögreglan segir að ekki sé útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða, en aðrar skýringar séu einnig til skoðunar.

Rannsakendur kanna jafnframt hvort atvikið kunni að tengjast átökunum í Miðausturlöndum.

Í yfirlýsingu lögreglu segir einnig að yfirvöld séu meðvituð um myndband sem birt var á síðu sendiráðsins á Google Maps um svipað leyti og sprengingin varð. Myndbandið hefur síðan verið fjarlægt.

Myndbandið var sett inn af óþekktum aðila og virðist sýna Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans.

„Lögreglan rannsakar nú ýmis atriði sem tengjast myndbandinu, en við viljum ekki tjá okkur frekar um málið að svo stöddu,“ segir í yfirlýsingunni.

Bandarísk sendiráð í Miðausturlöndum hafa undanfarið verið sett í aukna viðbúnaðarstöðu vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjanna gegn Íran. Nokkur þeirra hafa orðið fyrir árásum þar sem Íran hefur svarað með árásum á iðnaðar- og diplómatísk skotmörk.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár