Alls er óvíst að Donald Trump Bandaríkjaforseta verði að ósk sinni, að árásum Bandaríkjahers og þess íraelska á Íran ljúki fljótt. Pólitískt úrfall gæti orðið honum dýrkeypt.
Stríðið virðist vera að teygja anga sína til nágrannaríkja Írans, sem hafa orðið fyrir barðinu á flugskeytaárásum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Sádi-Arabíu auk Ísraels og Íraks. Þá er ljóst að efnahagsleg áhrif stríðsins gætu orðið umtalsverð á heiminn allan, þar á meðal okkur Íslendinga. Þar snýst allt fyrst og fremst um gas- og olíuverð.
Vandinn er þó ekki síður pólitískur. Stríðið er að mati margra álitið ólögmætt og úr hefur orðið pólitísk spenna á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Þar má helst nefna Spán sem neitar að heimila bandaríska hernum að notast við herstöðvar sínar. Það gerðu Bretar einnig í upphafi þó að þeir hafi mildast í afstöðu sinni. Þá var flugskeytum skotið í áttina að Tyrklandi, sem hefði dregið NATO beint inn …

















































Athugasemdir (1)