Kostnaðarsamt stríð og hikandi bandamenn

Stríðs­á­tökin í Íran gætu orðið flókin og lang­vinn ólíkt því sem for­seti Banda­ríkj­anna vonar. Þá hjálpar ekki að banda­menn eru hik­andi. Íranir aftur á móti virð­ast ekki finna sína banda­menn, og standa einir.

Kostnaðarsamt stríð og hikandi bandamenn
Íran Banda­ríkja­menn og Ísrael standa í ströngu þessa dag­ana. Mynd: IBRAHIM AMRO / AFP

Alls er óvíst að Donald Trump Banda­ríkja­for­seta verði að ósk sinni, að árásum Banda­ríkja­hers og þess íra­elska á Íran ljúki fljótt. Póli­tískt úrfall gæti orðið honum dýr­keypt. 

Stríðið virð­ist vera að teygja anga sína til nágranna­ríkja Írans, sem hafa orðið fyrir barð­inu á flug­skeyta­árásum frá Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum til Sádi-Arabíu auk Ísraels og Íraks. Þá er ljóst að efna­hags­leg áhrif stríðs­ins gætu orðið umtals­verð á heim­inn allan, þar á meðal okkur Íslend­inga. Þar snýst allt fyrst og fremst um gas- og olíu­verð.

Vandinn er þó ekki síður póli­tískur. Stríðið er að mati margra álitið ólög­mætt og úr hefur orðið póli­tísk spenna á milli Banda­ríkj­anna og Evrópu. Þar má helst nefna Spán sem neitar að heim­ila banda­ríska hernum að not­ast við her­stöðvar sínar. Það gerðu Bretar einnig í upp­hafi þó að þeir hafi mild­ast í afstöðu sinni. Þá var flug­skeytum skotið í átt­ina að Tyrk­landi, sem hefði dregið NATO …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Eiríksdóttir skrifaði
    Af hverju ætli það sé, að almennir borgarar í olíuríkjunum við Persaflóa fögnuðu þegar sprengjur féllu á herstöðvar Bandaríkjamanna? Gæti verið að þar leyndust bandamenn Írana? Spyr sá sem ekki veit.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það eru í raun fleiri hálvitar við stjórnvölinn í heiminum í dag en ég ímyndaði mér.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár