Svarar Trump: „Nei við stríði“

For­sæt­is­ráð­herra Spán­ar svar­ar hót­un­um Don­alds Trump og seg­ist ekki vilja vera sam­sek­ur í Ír­ans­stríð­inu.

Svarar Trump: „Nei við stríði“
Pedro Sanchez Forsætisráðherra Spánar svarar hótunum Bandaríkjaforseta. Mynd: AFP

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, svaraði í morgun gagnrýni og hótunum Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, vegna þeirrar ákvörðunar Spánverja að leyfa ekki bandarískum flugvélum að nota herstöðvar sínar til árása á Íran.

„Afstöðu spænsku ríkisstjórnarinnar má draga saman í þremur orðum: Nei við stríði,“ sagði hann í sjónvarpsávarpi, degi eftir að Trump hótaði að slíta öllum viðskiptum við Spán.

„Við munum ekki verða samsek í einhverju sem er skaðlegt fyrir heiminn og gengur gegn gildum okkar og hagsmunum, einfaldlega af ótta við hefndaraðgerðir,“ sagði Sánchez.

„Spánn hefur verið hræðilegur,“ sagði Trump við fréttamenn þegar hann hitti Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, í Hvíta húsinu í gær.

„Við ætlum að slíta öllum viðskiptum við Spán. Við viljum ekkert með Spán hafa.“

Ríkisstjórn Spánar hefur staðið fast við þá afstöðu að fylgja beri alþjóðalögum og stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Brotið hefur verið gegn þeim síðustu ár í hótunum Bandaríkjanna gegn Grænlandi, aðgerðum gegn Venesúela, árásum á Gaza og innrásinni í Úkraínu.

„Sumir munu segja að við séum ein í þessari von, en það er heldur ekki satt. Ríkisstjórn Spánar stendur með þeim sem hún á að standa með, hún stendur með þeim gildum sem foreldrar okkar og afar og ömmur festu í stjórnarskrá okkar. Spánn stendur með grundvallarreglum Evrópusambandsins, hann stendur með stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Sánchez í morgun.

Forsætisráðherrann nefndi Trump ekki á nafn í ávarpi sínu og minntist ekki á notkun spænsku herstöðvanna í Rota og Morón, sem var kveikjan að hótun Bandaríkjaforseta. Ræða hans var hins vegar full af óbeinum tilvísunum og vörn fyrir fullveldi og stöðu Spánar gagnvart hótunum frá Trump.

„Það er algjörlega óásættanlegt að þeir leiðtogar sem eru ófærir um að sinna því verkefni – að bæta líf fólks – noti þoku stríðsins til að hylma yfir eigin mistök og fylla um leið vasa fárra, þeirra sömu og alltaf,“ sagði hann.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár