Þáði verktakagreiðslur og tók þátt í að afnema þær

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, settur rektor við Háskól­ann á Bifröst, þáði verk­taka­greiðslur í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sitt fyrir kennslu. Miklar deilur hafa verið eftir að tekið var fyrir verk­töku fast­ráð­inna starfs­manna, að sögn for­vera hennar í starfi, en Ólína var hlynnt þeirri ákvörðun að banna hana.

Þáði verktakagreiðslur og tók þátt í að afnema þær

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, settur rektor Háskól­ans á Bifröst, þáði sam­kvæmt gögnum sem Heim­ildin hefur undir höndum 3,4 millj­ónir í verk­taka­greiðslur frá háskól­anum í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sitt Lausn­a­stein ehf. fyrir kennslu árið 2023 þegar hún var deild­ar­for­seti félags­vís­inda­deildar.

Ólína segir við Heim­ild­ina að greiðsl­urnar hafi hún fengið vegna kennslu vet­ur­inn 2022-23 sem hún hafði skuld­bundið sig í áður en hún varð fast­ráðin við skól­ann. Hún segir enn fremur að ein­stak­lingar hafi verið gerðir tor­tryggi­legir vegna við­skipta sinna við háskól­ann, þrátt fyrir að háskól­inn sjálfur hafi komið fyr­ir­komu­lag­inu á. 

Sinnti kennslu og þáði verktakagreiðslur

„Þetta var verk­lag sem var við­haft við Háskól­ann á Bifröst þangað til síð­ast­liðið haust. Allir stunda­kenn­arar við skól­ann voru verk­takar og stór hluti þeirra tók greiðslur í gegnum fyr­ir­tæki,“ segir Ólína Kjerúlf og bætir við að greiðsl­urnar hafi mið­ast við gjald­skrá skól­ans á hverjum tíma fyrir sig. 

Hún skýrir að hún hafi byrjað við Háskól­ann á Bifröst sem …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár