Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir stefnu flokksins

„Við er­um ekki að taka upp stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í út­lend­inga­mál­um,“ sagði Odd­ný Harð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi formað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, fyr­ir tveim­ur ár­um en dreg­ur nú í efa að hún hafi haft rétt fyr­ir sér.

Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir stefnu flokksins
Oddný og Kristrún Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar virðist gagnrýna stefnu flokksins í útlendingamálum.

Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, virðist gagnrýna núverandi forystu flokksins og stefnu hans í útlendingamálum. 

Oddný rifjar upp viðtal Heimildarinnar við sig fyrir sléttum tveimur árum síðan í færslu á Facebook í dag. Fyrirsögn greinarinnar var tilvitnun í Oddnýju: „Við erum ekki að taka upp stefnu Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum“.

Hún birtir greinina í heild sinni á Facebook síðu sinni. „Þetta var fyrir nákvæmlega tveimur árum,“ skrifar Oddný. „Einhverjir gætu haldið því fram að þarna hafi ég ekki haft rétt fyrir mér.“

Heimdellingar fögnuðu orðum Kristrúnar

Viðtalið sem birt var 23. febrúar 2023 var tekið skömmu eftir að Kristrún Frostadóttir, núverandi formaður flokksins, fór í hlaðvarpið Eina pælingu og sagði að velferðarsamfélag þyrfti landamæri og að hún hefði skilning á áformum þáverandi dómsmálaráðherra um lokuð búsetuúrræði.

Orð Kristrúnar vöktu athygli og lýstu sumir samflokksmenn hennar yfir óánægju með afstöðu hennar. Fulltrúar Heimdallar, félagar ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, héldu því hins …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Já, ég er sammála Sabine. Hvað er að þessum stjórnmálamöllum? Ekkert að marka þá, ég hef alltaf haft mikla trú á Oddnýju. Svo bregðast krosstré sem önnur
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
5
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár