Býður sig fram til formennsku í VG

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona sem vék úr Vinstri grænum vegna útlend­inga­mála, er snúin aftur og stefnir á for­manns­stól­inn.

Býður sig fram til formennsku í VG
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Sagði sig úr Vinstri grænum 2020, en er snúin aftur og farin í for­manns­fram­boð. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna sem gekk til liðs við Sam­fylk­ing­una árið 2020, hefur til­kynnt um for­manns­fram­boð í VG.

Svandís Svav­ars­dóttir for­maður hefur ákveðið að halda ekki áfram þegar lands­fundur flokks­ins fer fram í byrjun mars. 

Rósa kveðst vilja bregð­ast við bakslagi í umhverf­is­málum, jafn­rétt­is­málum, mann­rétt­inda­málum og „for­herð­ingu í útlend­inga­málum“.

Hún segir að í hægri slag­síðu íslenskra stjórn­mála sé „nauð­syn­legt að til staðar sé stjórn­mála­afl msem veitir öfl­uga við­spyrnu frá vinstri“.

Rósa sagði sig úr Vinstri grænum árið 2020 eftir að egypsk flótta­fjöl­skylda var flutt úr landi. 

Hér er til­kynn­ing Rósu í heild sinni.

Eftir fjöl­mörg sam­töl við félaga mína hef ég tekið þá ákvörðun um að bjóða fram krafta mína til for­ystu Vinstri hreyf­ing­ar­innar- græns fram­boðs á lands­fundi í byrjun mars. 

Við í Vinstri grænum stöndum á tíma­mótum nú þegar við kjósum okkur nýja for­ystu. Við þau tíma­mót er ein­stakt tæki­færi til að blása lífi í stefnu­mál og hug­mynda­fræði sem skipta okkur öll svo miklu máli, skerpa þau og jafn­vel end­ur­skapa. 

Við sjáum og upp­lifum bakslag í umhverf­is­mál­unum, jafn­rétt­is­málum og mann­rétt­inda­málum, og erum að horfa upp á ótrú­lega for­herð­ingu þegar kemur að útlend­inga­málum hér á landi. Ég heyri ákall eftir skýrri rödd sem veitir bakslag­inu við­nám og fólk vill líka finna að það er til staðar fram­tíð­ar­sýn sem byggir á von og fjöl­breyttum tæki­færum í sam­fé­lag­inu. Að til staðar sé sam­ein­andi rödd en ekki sundr­andi og úti­lok­andi.

Mín áherslu­mál ef ég næ kjöri sem for­maður VG eru að styrkja og skerpa mál­flutn­ing okkar í umhverf­is­mál­unum og standa styrkan vörð um mann­rétt­inda­málin. Vinna gegn vax­andi mis­skipt­ingu og fátækt og halda á lofti áherslum friðar og meiri sam­vinnu við líkt þenkj­andi ríki á alþjóða­svið­inu. 

Und­an­farnar vikur er ég búin að eiga góð sam­töl við félaga mína í VG um allt land og ég finn að fólk saknar að haldið sé kröft­ugar á lofti sjón­ar­miðum umhverf­is­verndar og mann­rétt­inda. 

Það er einnig ljóst að félags­hyggju­fólk, í mörgum flokkum, þyrstir í afdrátt­ar­lausa afstöðu til þeirra vanda­mála sem stjórn­málin standa frammi fyrir. Þar sem spyrnt er fótum við mis­mun í sam­fé­lag­inu og sundr­andi orð­ræðu. Í hægrislag­síðu íslenskra stjórn­mála er nauð­syn­legt að til staðar sé stjórn­mála­afl sem veitir öfl­uga við­spyrnu frá vinstri. 

Nú skulum við styrkja okkur um land allt og opna dyrnar fyrir nýjum félögum og ferskum vindum. Við skulum efla sjálfs­traustið og horfa til fram­tíðar saman. 

Á morgun hefst spenn­andi for­val hjá VG í Reykja­vík fyrir sæti á sam­ein­uðu fram­boði með Vori til vinstri fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Við erum að klára fram­boðs­lista á Akureyri, í Múla­þingi og í Norð­ur­þingi og von­andi í Borg­ar­byggð, í Skaga­firði og í Hafn­ar­firði líka. 

Ég er ein­læg­lega spennt og hlakka mikið til að fara í upp­bygg­ingu og við­spyrnu VG. Þar hef ég kynnst mörgu frá­bæru fólki og kærum vinum í gegnum tíð­ina; enda segi ég oft að klárasta og fyndn­asta fólkið sé sam­an­komið í þess­ari hreyf­ingu. 

Það verða brekkur og stundum súld, en sól­ar­dag­arnir verða frá­bærir og miklu fleiri! 

Áfram gakk og áfram VG ! 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Það eru fábjánar sem styðja að efni séu sett í fólk og það pyntað.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár