Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
Ari Edwald Oddviti Miðflokksins í Reykjavík hefur stýrt fyrirtækjunum 365 miðlum, Mjólkursamsölunni og Ísey útflutningi en einnig fjárfest í gegnum eignarhaldsfélag sitt og tekið þátt í ýmissi stjórnmála- og hagsmunabaráttu.

Ari Edwald var kynntur sem fyrsti maður á lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar á mánudag eftir að myndband fór í dreifingu á samfélagsmiðlum af jakkafataklæddum nýjum oddvita sem ekki sást í andlitið á.

Ara hefur verið stillt upp sem reynslumiklum manni úr viðskiptalífinu til að stýra Reykjavíkurborg eins og vel reknu fyrirtæki. Viðskiptasaga hans er fjölbreytt en hann fór úr starfi í pólitík yfir í hagsmunabaráttu og þaðan í að leiða tvö fyrirtæki sem oft hefur gustað um. Inn á milli sinnti hann eigin fjárfestingum, meðal annars með stærsta leigufélagi landsins á sínum tíma. Þá hafa stjórnmálaskoðanir hans ekki alltaf rímað við það sem Miðflokkurinn stendur fyrir nú.

Ari er 61 árs gamall, menntaður í lögfræði við Háskóla Íslands og með MBA-gráðu frá University of San Francisco. Hann starfaði í Heimdalli og Sambandi ungra sjálfstæðismanna og varð aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar til átta ára, fyrst í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og svo í …

Kjósa
60
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Þetta yfirlit sýnir að það ætti enginn að kjósa Miðflokkinn.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ótrúleg umsvif eins manns.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ég segi nú bara, hjálpi mér heilagur Hans klaufi.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár