Sautján ára piltur lést á Miklubraut

Tveir ungir pilar lentu í slys­inu. Kyrrð­ar­stund haldin í Árbæj­ar­kirkju.

Sautján ára piltur lést á Miklubraut
Frá Miklu­braut Slysið varð nærri Breið­holts­braut, þar sem Mikla­braut liggur fram hjá Hjálp­ræð­is­hernum. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Sautján ára piltur lést í umferð­ar­slys­inu á Miklu­braut i Reykja­vík í gær­kvöldi. Hann var far­þegi í bif­reið sem var ekið austur Miklu­braut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálp­ræð­is­hers­ins.

Öku­mað­ur­inn, piltur á sama aldri, slas­að­ist tölu­vert og er líðan hans eftir atvikum.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa rann­saka til­drög slyss­ins.

Boðað hefur verið til kyrrð­ar­stundar í Árbæj­ar­kirkju í dag klukkan 16 vegna slyss­ins.

„Í ljósi sorg­legs slyss sem varð í gær verður haldin kyrrð­ar­stund í Árbæj­ar­kirkju í dag. Séra Þór Hauksson leiðir stund­ina og Guð­mundur org­anisti leikur undir. Gestum gefst kostur á að tendra kerti í friði og hljóðri minn­ingu. Kyrrð­ar­stundin hefst klukk­ann 16:00 og eru allir hjart­an­lega vel­komnir,“ segir í til­kynn­ingu Árbæj­ar­kirkju á Facebook.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár