Bjarni Benediktsson nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Bjarni Benediktsson nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Bjarni Bene­dikts­son hefur verið ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins og tekur við starf­inu 1. mars næst­kom­andi. Hann tekur við af Sigríði Margréti Odds­dóttur, sem nýlega var ráðin for­stjóri Bláa lóns­ins.

Í til­kynn­ingu vegna ráðn­ing­ar­innar segir að Bjarni hafi víð­tæka reynslu af stjórn­málum og efna­hags­málum. Það er ekki ofsögum sagt, því Bjarni gegndi ráð­herra­emb­ætti um ára­bil en hann sat á þingi frá 2003–2025, þegar hann sagði af sér emb­ætti í kjöl­far kosn­inga sem hann hafði sjálfur boðað til. 

Bjarni, sem er lög­fræð­ingur að mennt, hefur gegnt emb­ættum for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra. 

Í til­kynn­ingu Samtaka atvinnu­lífs­ins er haft eftir Jóni Ólafi Hall­dórs­syni, for­manni sam­tak­anna, að ráðn­ing Bjarna styrki for­ystu þeirra á mik­il­vægum tíma­mótum.

„Bjarni býr yfir ein­stakri reynslu og inn­sýn í íslenskt atvinnu­líf á mestu umbrota­tímum í íslensku sam­fé­lagi síð­ustu ára­tugi. Fáir þekkja gang­verk sam­fé­lags­ins jafn vel,“ er haft eftir Jóni Ólafi. Hann segir jafn­framt að …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Snúningsdyrnar eru vel smurðar í Borgartúni 35.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Áleitin spurning er hvort taka eigi þessu með brosi á vör? Bjarni þessi á sér nokkuð furðulega sögu og spurning hvort maður sem tengist fjölskyldufyrirtæki sem teygði álkurnar í skattaskjól í skattapardísum og gegndi starfi fjármálaráðherra, forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Umdeildir stjórnmálamenn komast ekki upp með svona lagað i venjulegu réttarríki. En á Íslandi hefur ákveðin spilling lengi verið viðloðandi.
    4
  • Ólafur Eyjólfsson skrifaði
    Einn mesti hatari kaupmáttar sem uppi hefur verið, en honum mun förlast í þessu starfi enda útbrunninn.
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ojbarasta.
    2
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Drusla.
    0
  • HÞÞ
    Hjalti Þór Þórsson skrifaði
    Þakklætisvottur fyrir vel unnin störf
    2
  • Guðlaugur Jóhannsson skrifaði
    já . auðvitað eigvað verður hann að vina '' svo hann hafi efnni á . að . étta
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár