Talsmaður Kremlar segir Pútín boðið í „friðarráð“ Trumps fyrir Gaza

Vla­dimír Pútín hef­ur feng­ið boð um að taka þátt í „frið­ar­ráði“ Don­alds Trump um stjórn­sýslu og upp­bygg­ingu Gaza eft­ir stríð. Tals­mað­ur Kreml­ar­stjórn­ar seg­ir Rússa vera að kanna nán­ar eðli til­boðs­ins með banda­rísk­um stjórn­völd­um.

Talsmaður Kremlar segir Pútín boðið í „friðarráð“ Trumps fyrir Gaza

Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur verið boðið að taka þátt í „friðarráði“ Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, sem ætlað er að hafa umsjón með stjórnsýslu og uppbyggingu á Gaza eftir stríð, að því er talsmaður stjórnvalda í Kreml sögðu í morgun.

„Pútín forseti fékk einnig boð um að ganga til liðs við þetta friðarráð,“ sagði talsmaðurinn Dmitry Peskov við blaðamenn, þar á meðal AFP, og bætti við að Rússar væru að reyna að „skýra öll blæbrigði“ tilboðsins með Washington.

Aðrir leiðtogar sem sagðir eru hafa fengið boð um að taka þátt í „friðarráðinu“:

  • Edi Rama, forsætisráðherra Albaníu
  • Javier Milei, forseti Argentínu
  • Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu
  • Mark Carney, forsætisráðherra Kanada
  • Nikos Christodoulides, forseti Kýpur
  • Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands
  • Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands
  • Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands
  • Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu
  • Abdullah II, konungur Jórdaníu
  • Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans
  • Santiago Pena, forseti Paragvæ
  • Nicusor Dan, forseti Rúmeníu
  • Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár