„Eftir vopnahléið eru þúsund manns enn í varðhaldi á grundvelli laganna“

Um 9.300 Palest­ínu­menn eru í haldi Ísraels í dag. Ríflega 1.200 þeirra eru þar á grund­velli laga um ólög­lega bar­áttu­menn og eru flestir frá Gaza. „Þegar stríði lýkur á að sleppa þér,“ segir Nadine Abu Arafeh mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur um lögin. Hún telur stöðu fanga lítið hafa breyst eftir vopna­hlé.

„Eftir vopnahléið eru þúsund manns enn í varðhaldi á grundvelli laganna“
Nadine Abu Arafeh Segir að enn sé fjöldi Palest­ínu­manna frá Gaza í haldi sem hefði átt að sleppa þegar vopna­hlé náð­ist. Mynd: Aðsent

„Vopna­hléið er þegar allt kemur til alls bara fyr­ir­sögn í dag­blaði,“ segir Nadine Abu Arafeh mann­rétt­inda­lög­fræð­ingur frá Palest­ínu. Hún starfar í Jer­úsalem sem lög­fræð­ingur Palest­ínu­manna í haldi í Ísrael. Heim­ildin ræddi við Nadine um stöðu fang­aðra Palest­ínu­manna í kjöl­far vopna­hlés en samn­ingur Ísrael og Hamas kvað á um að sleppa ætti 1.700 Palest­ínu­mönnum úr haldi og öllum gíslum Hamas.

„Vopnahlé mun ekki breyta ástand­inu því þetta er ekki spurn­ing um nokkur brot sem hægt er að laga. Þetta er spurn­ing um hvernig kerfið er byggt upp hvort sem það er á Gaza, í fang­elsum, á Vest­ur­bakk­anum eða öðrum svæðum sem nú kall­ast Ísrael,“ útskýrir Nadine sem segir kerf­is­breyt­ingar þarfar til þess að bæta stöðu Palest­ínu­manna.

Nú í jan­úar sæta tæp­lega 9.300 Palest­ínu­menn varð­haldi í ísra­elskum fang­elsum. Þeirra á meðal eru 3.385 í varð­haldi vegna „leyni­legra sönn­un­ar­gagna og án rétt­ar­halda“ og 1.237 eru titl­aðir sem „ólög­legir bar­áttu­menn“ sem heitir á ensku …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár