Aðsókn í guðfræði tekur kipp

Síð­ast­liðin tvö ár hefur borið á aukn­ingu í fjölda nýnema í guð­fræði­námi við Háskóla Íslands. Deild­ar­for­seti guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deildar segir fleiri koma beint úr fram­halds­skóla en áður og að til­finn­ing hennar sé að fólk stefni á að starfa innan kirkj­unnar.

Aðsókn í guðfræði tekur kipp
Aukinn áhugi á trú Arnfríði þykir ekki óraun­hæft að álykta að eitt­hvað sam­band sé á milli auk­innar aðsóknar í guð­fræði­nám og auk­ins áhuga á trú í sam­fé­lag­inu. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Síðustu tvö árin hefur aðsókn í guð­fræði­nám við Háskóla Íslands auk­ist. Í haust hófu 27 nem­endur nám við deild­ina og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 2011 þegar þeir voru 29. Árið 2024 voru nýnem­arnir 18 tals­ins. Þetta er nokkur breyt­ing frá árunum 2020-2023 þegar fjöldi nýnema var á bil­inu 8-14.

„Það sem mér finnst aðeins meira áber­andi núna er að við erum að fá fleira fólk beint úr fram­halds­skóla. Það er mjög ánægju­legt að fá ferskt ungt fólk inn,“ segir Arn­fríður Guð­munds­dóttir, guð­fræði­pró­fessor og deild­ar­for­seti guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deildar. 

Hún segir hóp­inn sem sæki námið vera „mjög bland­aðan“ og það hafi verið þannig lengi. Fólk sækir í nám í guð­fræði af ýmsum ástæðum, sumir af ein­skærum fræði­legum áhuga en aðrir því þeir stefna á starf innan kirkj­unnar. „Við erum með fimm námslínur svo það eru ekki allir að koma í sama til­gangi. Ég hef ekki gert neina …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár