Örplast meiri ógn við hafsvæði Íslands en áður var talið

Ný rann­sókn sýnir að mengun vegna örplasts er meiri við haf­svæði Íslands en áður var talið. Fjöldi dýra­teg­unda inn­byrðir plast sem hefur áhrif á grunn­lífs­starf­semi þeirra. „Frjósöm­ustu svæðin eru líka þau sem eru útsett­ust,“ segir Belén Garcia Ovide dokt­or­snemi. Örplastið kemur í miklum mæli úr sjáv­ar­út­vegi.

Örplast meiri ógn við hafsvæði Íslands en áður var talið
Örplast meira Belén Garcia Ovide rann­sakar mengun við haf­svæði Íslands. Mynd: Aðsent

„Ég bjóst við því að miðað við önnur svæði í Evrópu – þar sem við erum á eyju og mjög ber­skjölduð – myndi örplast­meng­unin ekki ná til svæða hér í eins miklu mæli. En greini­lega gerir hún það,“ segir Belén Garcia Ovide dokt­or­snemi við Háskóla Íslands við Heim­ild­ina. Ný rann­sókn hennar sýnir að mengun af völdum örplasts er mun meiri við haf­svæði Íslands en áður var talið.

Bélen hefur ásamt teymi frá Rann­sókn­ar­setri HÍ á Húsavík unnið verk­efni um heilsu vist­kerfa sjávar og áhrif meng­unar á líf­verur, þar á meðal hvali, sem er lyk­il­teg­und í fæðu­keðju hafs­ins. Samhliða er hóp­ur­inn að safna gögnum um magn og dreif­ingu örplasts á yfir­borði sjávar. Er kort­lagn­ingin sem hóp­ur­inn stendur að sú fyrsta sem gerð er á íslenskum haf­svæðum.

Örplast í norðri

„Við höfum siglt að minnsta kosti tvisvar á ári og tekið sýni til að mæla örplast­mengun á mis­mun­andi svæðum, …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Hefur megnið af íslenskum almenningi einhverjar áhyggjur af loftslagskrísunni og öllum hinum krísunum sem hljótast af hegðun og heimsku manna? Ég stórefast um það.

    Svo framarlega sem venjulegur neytandi í íslensku samfélagi getur leyft sér að fara sem oftast á lággjalda-prísum á þotu-flakki um heiminn og kaupgeta hans á meira drasli og dóti er ekki skert, þá held ég að flestum sé slétt sama um eitthvað sem kann að steðja að Náttúrunni. Flestir eru í þeim gírnum að fljóta sofandi að feigðarósi, að mínu mati. Eins og stundum er sagt: sá sem hefur sankað að sér mesta dótinu og draslinu, við leiðarlok lífsins, er óskoraður sigurvegari í markaðskapítalísku samfélagi.

    Fjöldinn í vestrænum samfélögum er í neyslumóki, eins og eiturlyfjafíkill á milli skammta. Okkar samfélag er í raun háð sem ódýrasta draslinu og afþreyingunni sem mögulegt er að komast yfir. Það veit stjórnmálastéttin og þannig er best a sefa neytendur og halda þeim rólegum. Það er bara óþægilegt að þurfa að horfast í augu við afleiðingar mannlegrar græðgi og heimsku.

    Má bjóða yður örplast með hvalkjötssteikinni?
    6
    • GK
      Gísli Kristjánsson skrifaði
      Útskýring:

      Þegar ég, hér að ofan, segi "... öllum hinum krísunum sem hljótast af hegðun og heimsku manna ...", þá á ég við krísur, af mannavöldum í Náttúrunni, eins og loftslagsbreytingar, hrun líffræðilegrar fjölbreytni, mengun í lífríkjum, jarðvegshningun og skortur á ferskvatni ásamt súrnun sjávar.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár