Alltof mikið rask „fyrir hagsmuni mjög fárra“

Stuðn­ings­menn virkj­un­ar­á­forma í Skjálf­anda­fljóti lyftu brúnum er vinnslu­til­laga aðal­skipu­lags Þing­eyj­ar­sveitar var aug­lýst nýverið. Þar var ekki að finna stakt orð um Ein­búa­virkjun, smá­virkjun svo­kall­aða sem land­eig­endur í Bárð­ar­dal áforma. Aðrir íbúar fagna hins vegar og segja fljótið mikla, sem fæðir bæði Ald­eyj­ar­foss og Goðafoss, dýr­mæt­ara í frjálsu falli.

Alltof mikið rask „fyrir hagsmuni mjög fárra“
Beljandi jök­ul­vatn Skjálf­anda­fljót rennur í flúðum á því svæði sem yrði fyrir áhrifum vegna Ein­búa­virkj­unar. Mynd: Shutterstock

Aðeins nokkrum dögum eftir að sveit­ar­stjórn Þing­eyj­ar­sveitar aug­lýsti vinnslu­til­lögu að nýju aðal­skipu­lagi í lok síð­asta árs fengu íbúar senda skoð­ana­könnun frá Maskínu í tölvu­pósti um virkj­un­ar­á­form í Skjálf­anda­fljóti. Í henni voru þeir spurðir hversu vel þeir þekktu til Ein­búa­virkj­unar. Hvort þeir vissu að hún yrði rennsl­is­virkjun með engu uppi­stöðu­lóni? Hvort þeir væru jákvæðir í garð hennar og hvort þeir teldu að hún myndi hafa góð eða slæm áhrif á nær­sam­fé­lagið? Og að lokum var svo spurt: Telur þú að sveit­ar­stjórn eigi að sam­þykkja eða hafna að aug­lýsa aðal- og deiliskipu­lag Ein­búa­virkj­unar?

Engar upp­lýs­ingar fylgdu um hver hefði óskað eftir könn­un­inni. Og Maskína vildi ekki upp­lýsa þá sem spurðu um það. Spurn­ingum rigndi yfir sveit­ar­fé­lagið svo byggð­ar­ráð þess sá ekki annan kost en að birta sér­staka til­kynn­ingu um málið til að sverja skoð­ana­könn­un­ina af sér. „Rétt er að það komi fram að Þing­eyj­ar­sveit stendur ekki fyrir neinum könn­unum um þessar …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Hvert fer vatnið, ef það skilar sér ekki niður í Goðafoss, eftir að hafa framleitt orkuna?
    0
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Fyrsta mál á dagskrá ætti að vera að útrýma þessum 10MW skrípaleik varðandi mat á umhverfisáhrifum og miða frekar við hvort land sé þegar raskað eður ei.
    3
    • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
      Sammála. Gerum umhverfismat að jafnaði að skyldu
      1
    • JA
      Jón Arnarson skrifaði
      Ótrúlega margir, ekki einungis einkaaðilar, heldur og opinber fyrirtæki, vilja virkja undir 10M til þess að geta einungis séð um orkusölu en ekki samfélagið!
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár