Leiðir til að njóta skammdegisins

Skamm­degið leggst mis­vel í fólk en það eru leiðir til að njóta þess. Hér deilir fólk því hvernig það skapar gleði­stundir í skamm­deg­inu.

Leiðir til að njóta skammdegisins

1. Að lesa góða bók

G. Pétur Matthíasson

„Það er ynd­is­legt að lesa – allan árs­ins hring. Sér­stak­lega er þó nota­legt að liggja út af með góða bók þegar skamm­degið er sem mest. Hverfa inn í aðra ver­öld og njóta alls þess sem lest­ur­inn hefur upp á að bjóða. Ekki til að hverfa úr skamm­deg­inu því það umlykur lest­ur­inn og umvefur les­and­ann um leið og hann upp­lifir allt það sem í boði er sem er enda­laust. Bókin hefur fylgt mér frá því ég lærði að lesa og er alltaf innan seil­ingar. Þegar ég var nýbú­inn að læra að lesa las ég upp­hátt fyrir litla bróður minn. Undir jól þegar spennan var sem mest og við áttum að vera farnir að sofa, lágum við undir sæng með vasa­ljós og ég las. Þetta olli þeim vand­ræðum, sem ekki sáust fyrir, að bróðir minn varð seint læs – honum dugði alveg að ég …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár