Jóhann Páll: „Ísland er ekki í skjóli“

Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra gaf í dag út aðlög­un­ar­á­ætlun um lofts­lags­breyt­ingar. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn og land­bún­aður þurfa áhættu­mat og seigla vega­kerf­is­ins verður kort­lögð. „Við þurfum að aðlaga sam­fé­lagið og inn­viði að þeim breyt­ingum sem eru þegar hafnar,“ segir ráð­herr­ann.

Jóhann Páll: „Ísland er ekki í skjóli“
Lofts­lags­ráð­herra Segir sam­fé­lagið þurfa að lag­ast að lofts­lags­breyt­ingum. Mynd: Golli

Jóhann Páll Jóhanns­sonu­um­hverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, gaf í dag út aðlög­un­ar­á­ætlun íslenskra stjórn­valda vegna áhrifa lofts­lags­breyt­inga. Er þetta í fyrsta skipti sem slík áætlun er unnin. 

Í frétta­til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins segir að áhersla verði lögð á „við­brögð og mat á áhrifum lofts­lags­breyt­inga á íslenska nátt­úru, sam­fé­lag og inn­viði til að ná utan um afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga.“

Markmið áætl­un­ar­innar er að draga úr „lofts­lagstengdri áhættu til lengri og skemmri tíma með því að auka seiglu sam­fé­lags og vist­kerfa.“ 

 „Lofts­lags­breyt­ingar eru ekki fram­tíð­ar­vandi, heldur við­burður sem hefur afleið­ingar hér og nú, og sem heims­byggðin er þegar farin að finna á eigin skinni. Ísland er ekki í skjóli. Við þurfum að aðlaga sam­fé­lagið og inn­viði að þeim breyt­ingum sem eru þegar hafnar, um leið og við tökum þátt í því alþjóð­lega verk­efni að draga úr losun,“ er haft eftir Jóhanni Páli.  

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár