Múslimi hylltur fyrir að stöðva fjöldamorð á Gyðingum

Bjarg­vætt­ur­inn á Bondi Beach, sem yfir­bug­aði byssu­mann mitt í skotárás hans á Gyðinga, er múslimi sem rekur ávaxta­verslun.

Múslimi hylltur fyrir að stöðva fjöldamorð á Gyðingum
Ahmed al Ahmed Yfir­bug­aði fjöldamorð­ingja en var skot­inn af hinum byssu­mann­inum. Mynd: Skjáskot

Maðurinn sem stöðv­aði hryðju­verka­mann í miðri skotárás á gyð­inga, sem fögn­uðu jóla­há­tíð­inni hanukkah á Bondi Beach í Sydney, er 43 ára gam­alla, tveggja barna faðir og múslimi.

Ahmed al Ahmed, sem rekur ávaxta­búð í Suther­land Shire í suð­ur­hluta Sydney, er hylltur sem hetja eftir að hafa afvopnað einn árás­armann­anna.

Árásin, sem átti sér stað um klukkan 18:47 að stað­ar­tíma í Archer Park við Bondi Beach, kost­aði 16 manns lífið og átti sér stað meðan um þús­und manns héldu upp á fyrsta dag hanukkah-hátíð­ar­innar. Lög­reglan í Nýja Suður-Wales rann­sakar nú hvort þriðji árás­armað­ur­inn hafi einnig átt þátt í ódæð­inu.

Hafði enga þjálfun í meðferð skotvopna

Mynd­skeið frá vett­vangi sýnir Ahmed, klæddan í hvíta stutt­erma­bol, hraða sér beint að einum árás­armann­inum sem hélt á riffl­inum og beindi honum að mann­fjöld­anum á strönd­inni. Ahmed hendir sér á hann, tekur af honum vopnið og beinir því síðan að árás­armann­inum sem hörfar í átt að brú þar sem annar skotárás­armaður var stað­settur.

Skotárásin í morgunAhmed stekkur á skot­mann­inn og stekkur honum svo á brott, en verður fyrir skoti frá hinum hryðju­verka­mann­inum.X

Að sögn frænda hans, Mustafu, sem ræddi við ástr­alska fjöl­miðla fyrir utan sjúkra­hús í Sydney, hafði Ahmed enga reynslu af skot­vopnum. „Hann var bara í heim­sókn á Bondi þegar árásin hófst – hann ákvað að bregð­ast við,“ sagði Mustafa.

Ahmed hlaut skotsár á hand­legg og hönd þegar annar árás­armað­ur­inn, stað­settur á brúnni, skaut í átt­ina að honum. Hann gekkst undir aðgerð að kvöldi sunnu­dags og er á bata­vegi. „Við vonum að hann verði í lagi,“ sagði Mustafa. „Hann er hetja, hund­rað pró­sent.“

Netanyahu: „Múslimi bjargaði gyðingum“

Ísra­elski for­sæt­is­ráð­herr­ann Benjamin Net­anyahu vís­aði til hetju­dáða Ahmeds á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.

„Við sáum verk hug­rakkar mann­eskju – og í ljós kemur að það var múslimi, hug­rakkur múslimi – sem stöðv­aði einn þess­ara hryðju­verka­manna frá því að drepa sak­lausa gyð­inga,“ sagði Net­anyahu.

Hann bætti við að hann hefði varað ástr­alska starfs­bróður sinn, Anthony Albanese, við því að stefna stjórn­valda þar í landi „kveikti elda gyð­inga­hat­urs“.

Hetjudáð sem snertir heim allan

Eftir að hafa tryggt að árás­armað­ur­inn væri afvopn­aður lagði Ahmed riffil­inn upp að tré og rétti hendur sínar upp – lík­lega til að sýna lög­reglu og öðrum á vett­vangi að hann væri ekki hluti af árásinni.

Hálfum sól­ar­hring síðar streymdu þús­undir skila­boða á sam­fé­lags­miðla þar sem Ahmed var hylltur fyrir hug­rekki sitt. Margir lýstu honum sem manni sem „valdi að hlaupa ekki í burtu, heldur í átt að hætt­unni“.

Lög­reglan stað­festi að einn árás­armann­anna hefði verið skot­inn til bana og annar væri lífs­hættu­lega særður. Rannsókn stendur enn yfir.

Ahmed al Ahmed liggur nú á sjúkra­húsi í Sydney, með skotsár á hönd.

Hann fékk meira að segja hrós frá Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, sem hrós­aði mann­inum sem afvopn­aði byssu­mann­inn og sagð­ist bera „mikla virð­ingu“ fyrir honum, en Trump hefur boðað bann á inn­flutn­ing fólks frá ýmsum múslima­löndum.

„Þetta var mjög, mjög hug­rakkur maður, sem réðst beint á einn skot­mann­anna og bjarg­aði mörgum manns­lífum,“ sagði banda­ríski for­set­inn og bætti við að mað­ur­inn „er núna á spít­ala, nokkuð alvar­lega særður.“

Anthony Albanese for­sæt­is­ráð­herra hyllti hann og aðra sem „hetjur“, líkt og Chris Minns, fylk­is­for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Suður-Wales, fylk­is­ins þar sem Bondi Beach er stað­sett.

„Í allri þess­ari illsku, í allri þess­ari sorg, eru enn til dásam­legir, hug­rakkir Ástralir sem eru reiðu­búnir að hætta lífi sínu til að hjálpa ókunn­ugum,“ sagði Minns á blaða­manna­fundi í dag.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár