Útgerðarfólk komið með meirihluta í Domino's

Eigendur Lýsis, sem selja nú fyr­ir­tækið til útgerð­ar­fé­lags­ins Brims fyrir 30 millj­arða króna, hafa eign­ast fjórð­ungs­hlut í Domino's. Eigendur Brims og Ísfé­lags­ins munu eiga pizzukeðjuna ásamt Bjarna Ármanns­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitnis.

Útgerðarfólk komið með meirihluta í Domino's
Katrín Pét­urs­dóttir Frá­far­andi eig­endur Lýsis verða stærstu hlut­hafar í Domino's á Íslandi en Lýsi var nýlega selt útgerð­ar­fé­lag­inu Brimi fyrir 30 millj­arða króna. Mynd: Eyþór

Birgir Þór Bield­vedt fjár­festir og einn af stofn­endum Domino's á Íslandi hefur selt allan hlut sinn í skyndi­bita­keðj­unni sem rekur 22 pizzastaði um land allt. 25,6% hlutur í móð­ur­fé­lagi Domino's var seldur félagi í eigu fólks sem kennt er við fyr­ir­tækið Lýsi.

Eign­ar­hald Domino's á Íslandi er þannig að uppi­stöðu komið í hendur þekkts fólks úr sjáv­ar­út­vegi. Katrín Pét­urs­dóttir, for­stjóri Lýsis, og dóttir hennar, Erla Katrín Jóns­dóttir, fara ásamt Gunn­laugi S. Gunn­laugs­syni, stjórn­ar­for­manni Lýsis, fyrir félag­inu Ívari sem kaupir fjórð­ungs­hlut­inn af félagi í eigu Birgis.

Þar að auki á Lýsi sjálft 12,9% hlut í móð­ur­fé­lagi Domino's en nýlega var til­kynnt um sölu Lýsis til útgerð­ar­fé­lags­ins Brim. Verða eig­endur Lýsis og Brim því stærstu eig­endur Domino's með um 38,5% hlut þegar salan er gengin í gegn.

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, einn eig­enda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum, og fjöl­skylda hennar eiga nú 34,7% hlut. Bjarni Ármanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, á 25,7% hlut í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár