Segir Stefán geta bjargað Vinstri grænum

Össur Skarp­héð­ins­son veitir utan­þings vinstri flokki ráð­gjöf.

Segir Stefán geta bjargað Vinstri grænum
Össur Skarp­héð­ins­son Fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar vísar VG veg­inn. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi for­maður og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, full­yrðir að sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson sé væn­legur bjarg­vættur Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, sem féll af þingi í síð­ustu kosn­ingum og mælist enn utan þings.

„Stefán Pálsson er lík­lega skarpasti kut­inn í ræfl­inum sem eftir er af skúffu VG. Hæfilega skrít­inn, mælsk­ari en and­skot­inn, krull­hærður - sem er plús - og sér­lega fimur í að verja vondan mál­stað,“ segir Össur.

Tilefnið er fram­koma og frammi­staða Stefáns í Silfrinu í kvöld, sem hann telur und­ir­strika mann­kosti og kjör­þokka umfram Svandísi Svav­ars­dóttur og Guðmund Inga Guð­brands­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og eft­ir­menn Katrínar Jak­obs­dóttur.

„Þetta kom allt vel fram í Silfrinu í kvöld. Hann er maður að mínu skapi. VG þarf óvænta leiki til að lifa af og finna for­ystu­fólk með meiri kjör­þokka en Svandís og Guð­mundur Ingi sem bók­staf­lega slátr­uðu VG með ótrú­legum afleikjum á hel­spretti flokks­ins í blá­lok síð­ustu rík­is­stjórnar. Bæði vilja þó leiða leif­arnar í næstu kosn­ingum,“ segir hann.

Stefán PálssonLeitað er þess sem getur leitt Vinstri græn í gegnum lýð­ræð­is­lega eyði­merk­ur­göngu.

„Stefán yrði hins vegar óvænt útspil sem for­manns­efni og myndi kjafta VG gegnum múr­inn. En hann er ekki í flokks­eig­enda­klíkunni, VG er á hraðri leið fyrir end­an­legan ætt­ern­is­stapa og fyrir löngu búið að tapa tengslum við raun­veru­leik­ann. Lík­leg­ast er að Svandís verði klöppuð upp til að veita tætl­unum sem eftir eru af VG síð­ustu nábjarg­irnar,“ segir Össur og bætir við af kerskni. „En eng­inn getur skammað mig fyrir að hafa ekki bent þeim á leið til lífs.“

Svandís Svav­ars­dóttir er nú for­maður VG og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son vara­for­maður. Flokk­ur­inn mælist enn utan þings, með aðeins 3,2% fylgi.

Stefán Pálsson er vara­borg­ar­full­trúi VG. Hann var útskrif­aður sagn­fræð­ingur frá Háskóla Íslands árið 1998. Þá lauk hann MSc-gráðu í vís­inda- og tækni­fræðum frá Edin­borg­ar­há­skóla árið 2001.

Hann var for­maður Samtaka hern­að­ar­and­stæð­inga fá 2000 til 2015, var spurn­inga­höf­undur Gettu betur og leið­beindi lengi við bjór­skóla Ölgerð­ar­innar. Þá er hann þekktur stuðn­ings­maður Fram og Luton Town.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hann Össur er grínisti. Enginn getur bjargað Vinstri Grænum. Þeir hafa svikið öll sín helstu stefnumál.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár